samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir mjög góða ræðu. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í fjármögnun samgönguáætlunar og fjármálaáætlunar, reikningsdæmið á bak við og samspilið þar á milli. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að samgönguáætlun er ekkert fullfjármögnuð. Framkvæmdaáætlun stenst á við fjármálaáætlun en það er bara fyrsta fimm ára áætlunin. Restin, sem eru 160 milljarðar kr., er ófjármögnuð. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að hér tala stjórnarliðar oft eins og þetta sé allt saman frágengið og fullfjármagnað. Það eru 64,7 milljarðar kr. á fyrsta tímabili áætlunarinnar sem eru fjármagnaðir. Annað er það ekki, þessir 160 milljarðar kr.
Mig langar að spyrja hv. þingmann út í þetta af því að hann var að ræða um hvað hefur verið sagt og hvað er síðan gert. Það er þessi aukning sem var boðuð í samgöngumálum fyrir áramót, þegar talað var um veiðigjöld, 7,5 milljarða kr., kílómetragjald, 3,5 milljarða kr., og vörugjöld, 7,5 milljarða kr. Þetta eru 18,3 milljarðar kr. á ári sem okkur var lofað í samgöngubætur. Þegar þú skoðar muninn á fjárlögum fyrir árið 2025 og því sem ný ríkisstjórn bætti við fyrir árið 2026 eru það 4 milljarðar kr. Til að bíta höfuðið af skömminni er það þannig að þetta lækkar um 1,4 milljarða kr. á tímabili áætlunarinnar frá 2026–2031. Hvað finnst hv. þingmanni um þetta? Eru menn að standa við það sem þeir sögðu?