samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður er vel inni í þessum málum enda á hann sæti í fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd. Þetta voru sláandi tölur sem hann fór yfir. Ég veit ekki hvaða orð ég á að nota sem er ekki of sterkt en þetta eru ákveðin kosningasvik. Ég held að það sé alveg nógu vægt til orða tekið. Því var lofað að fara í stórfellt innviðaátak. Svo fengu menn þjóðina með sér í lið til að auka skattheimtu á fyrirtæki í landinu sem endar auðvitað á heimilum. Það var alveg skýrt að þessir peningar áttu að fara í innviði. Eins og hv. þingmaður fór yfir eru bara 4 milljarðar kr. sem skila sér af 18,3 milljörðum kr.
Það sjá allir að auðvitað er ekki verið að standa við það sem var lofað. Hæstv. ríkisstjórn telur kannski að hún sé að fara í þessa miklu innviðauppbyggingu í gegnum innviðafélagið. Það er allt annað mál. Ef það er loforðið hefði kannski ekki þurft að hækka alla þessa kílómetraskatta og vörugjöld vegna þess að hitt, veggjöld, er bara viðbótarskattur sem á að koma í gegnum innviðagjald. Mér finnst þetta ekki gott gagnvart heimilum landsins. Þess vegna, eins og hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson fór yfir, held ég að við verðum að draga úr þessari skattheimtu á heimili landsins einhvers staðar annars staðar ef við förum í þessi nýju veggjöld.