samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Ég get tekið undir það með hv. þingmanni að það sem birtist hér í samgönguáætlun og fjármálaáætlun er klárlega ekki það sem var talað um fyrir jól. Þá komu hæstv. ráðherrar og hv. þingmenn stjórnarliðsins í röðum, þegar við vorum að ræða um veiðigjöld, og töluðu um það hvort við vildum ekki betri samgöngur á landsbyggðinni og hvort við ætluðum að standa í vegi fyrir veiðigjöldum vegna þess að þau myndu skapa 7,5 milljarða kr. sem ættu að fara í samgöngur á landsbyggðinni.
Virðulegi forseti. Þetta er sama umræða og var um kílómetragjald og þetta er sama umræða og var um vörugjöld. Þá var alltaf talað um samgöngur úti á landi og hvort við ætluðum að standa í vegi fyrir þeim. Síðan fara þessi frumvörp í gegn, 18,3 milljarðar kr., og raunhækkun er 4 milljarðar kr. Það er augljóst að þarna eru menn ekki að gera það sem þeir sögðust ætla að gera.
Mig langar að spyrja hv. þingmann að nokkru og ætla að koma að því í ræðu minni á eftir — ég get eiginlega ekki á mér setið þar sem hv. þingmaður kom aðeins inn á þetta. Í allri þessari umræðu um veggjöld, hvort sem það er hjá innviðafélaginu eða í Betri samgöngum, er alveg ljóst að það er verið að auka verulega skattbyrði á fólk, almenning og fyrirtæki í landinu. Gott og vel, við fáum eitthvað fyrir það. Við fáum betri og öruggari vegi. Finnst hv. þingmanni ekki að með þessum gríðarlegu fjármunum, sem koma inn gegnum veggjöld, þurfi að endurskoða kerfið í heild sinni hvað varðar greiðsluþátttöku almennings í samgöngum og umferð?