157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:02]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég fer bara strax að spurningunni. Jú, ég held að það þurfi að endurskoða þetta alveg frá grunni. Eins og hv. þingmaður kom inn á var því lofað að sérstaklega yrði aukið við samgöngubætur á landsbyggðinni með nýrri skattlagningu á sjávarútvegsfyrirtæki og á sjávarþorp um allt land. Við fórum vel yfir þetta hér síðasta sumar. Nú er það klárt að farið verður í stóru framkvæmdirnar, arðbær verkefni sem eru sennilega flest á höfuðborgarsvæðinu.

Varðandi kostnað liggur fyrir að hvert heimili verður kannski að borga 40–50.000 kr. að meðaltali í hverjum einasta mánuði í veggjöld eftir nokkur ár. Mér finnst blasa við að það þurfi að endurskoða þetta verulega. Fólk notar til að mynda sömu vegi mjög oft. Það þarf að vera eitthvert þak og það þarf að draga úr annarri skattheimtu. Við getum ekki bætt 40–50.000 kr. við í hverjum einasta mánuði og lagt á heimili landsins og látið eins og það hafi engin áhrif. Auðvitað er það ekki þannig.

Ég tek undir með hv. þingmanni. Ég hef áhyggjur af skattastjórninni sem við búum við. Ég hef áhyggjur af því að hún muni ekki endurskoða þetta frá grunni og að þetta verði bara viðbót á viðbót ofan.