samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni sína ræðu. Ég hjó eftir því í hennar máli að hún kom inn á samgöngusáttmálann víðfræga og þingmaðurinn er í kjördæmi hérna á höfuðborgarsvæðinu, í Kragakjördæminu eins og sú sem hér stendur. Í nýliðinni kosningabaráttu var samgöngusáttmálinn mjög mikið til umfjöllunar og möguleg endurskoðun á honum og manni heyrðist sem flestir stjórnmálaflokkar væru komnir í þá vegferð. Ég held að við tökum undir það að það sé brýnt. Þótt hann hafi verið uppfærður fyrir fáeinum árum þá er endurskoðun verkefna og fjárfestinga og framkvæmda annar hlutur. Mig langaði aðeins að fá það fram, af því að nú virðist sem ætlun nýrrar stjórnar hérna í Reykjavík, það kemur fram í málefnasamningi eða í fyrstu aðgerðum nýrrar borgarstjórnar, sé að endurskoða samgöngusáttmálann: Hvað myndi hv. þingmaður helst vilja að gerðist í slíkri endurskoðun? Hvaða þætti ætti að leggja fram til breytinga á þeim sáttmála eins og hann liggur fyrir núna?