157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:06]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég myndi setja númer eitt, tvö og þrjú: Burt með borgarlínu í núverandi mynd. Það er frekar fyndið að borgarlínan er þannig að það á að byggja hana fyrir alla aðra en fólkið sjálft sem talar um hana. Ég hef ekki hitt marga sem segja: Ég mun byrja að nota strætó þegar borgarlínan kemur, því borgarlínan er bara risavaxinn strætó. Nú tek ég þó nokkuð oft strætó af því að ég bý nú við þessar stofnæðar og það er bara mjög gott að taka strætó. Það eru yfirleitt mjög fáir í strætó. Ég held því miður að þó að við fáum þennan risavaxna strætó með tilheyrandi kostnaði þá muni það ekki skila þeim árangri sem er stefnt að enda kemur fram varðandi borgarlínuna að hún muni ekki virka nema þrengt verði verulega að umferð. Þetta bara stendur í skýrslu um borgarlínuna. Það eru til góðar lausnir að betri strætósamgöngum fyrir brotabrot af kostnaðinum, af því sem þetta mun kosta. En þetta er að verða eins og trúarbrögð, það má bara ekki endurskoða þetta. Í þessum samningi í Reykjavík, já, þau ætla eitthvað að skoða þetta en á sama tíma segir Viðreisn að það megi alls ekki taka þetta of mikið upp, það má ekki stoppa neitt.

Hv. þingmaður er áhugasöm um sjálfkeyrandi bíla og ég sá að hún er að vinna í máli varðandi það. Á svona tímum þegar tækninni fleygir fram þá held ég að Ísland ætti frekar að reyna að vera fyrirmyndarlandið því við værum örugglega í góðum málum, hér er langt á milli og við erum bílaþjóð, til að vera fremst í flokki þess að samnýta og nýta sjálfkeyrandi bíla. Það er eitthvað sem við ættum að skoða nánar en minnka borgarlínuna í núverandi mynd.