samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Í þessari umræðu síðustu daga hafa kannski ekki svo margir þingmenn af höfuðborgarsvæðinu, úr Reykjavík eða Kraganum, tekið til máls, með einhverjum undantekningum. Mér skilst að það sé nú svona venjan, það sé áhersla hjá þingmönnum utan af landi að takast á um þessi mál. En við sáum það einmitt í kosningabaráttunni fyrir sveitarstjórnarkosningarnar, af því að ég var að nefna þær áðan, ég efast um að nokkurn tímann hafi einmitt samgöngumál verið eins mikið til umfjöllunar í sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu, einmitt út frá þessu, út frá samgöngusáttmálanum og út frá því að engar spár standast sem unnið hefur verið út frá. Eftir 20 ár í sveitarstjórnarmálum þá man ég hreinlega ekki eftir að samgöngumálin hafi nokkurn tímann verið eins mikið á dagskrá, sem er gott, þetta er risastórt mál hérna hjá okkur á þessu svæði. Inn í þessa umræðu hefur óneitanlega blandast mikið hugmyndafræði innviðafélags sem er á dagskrá fljótlega eftir að þessum dagskrárlið lýkur einhvern tíma. Menn hafa gagnrýnt það að það sé kannski verið að byrja á öfugum enda með því að vera ræða samgönguáætlun, samgöngusáttmála og svo innviðafélagið sem virðist vera dálítið óljóst eða óskýrt og misjafnt hvernig fólk er að skilja hvað í því felst. En mig langaði að fá það fram hjá hv. þingmanni Suðvesturkjördæmis hvort hún sjái tækifæri í því að flýta einhverjum framkvæmdum, jafnvel út fyrir samgöngusáttmálann, í okkar kjördæmi með því að þær færu hugsanlega inn í þetta títtnefnda innviðafélag.