samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Já, ég sé mikil tækifæri í því og satt best að segja hefur verið alveg ótrúlega lítið gert í samgönguframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu og það er nú að stórum hluta um að kenna Samfylkingunni og Viðreisn sem hafa stýrt borginni og haft hana í heljargreipum, verið mikið í nöp við einkabílinn og hafa gert allt, ljósastýringar og annað, þannig að það sé til óþurftar frekar en til bóta. Ég sé mikil tækifæri í samgönguframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu. Ég held að innviðafélag gæti komið mjög sterkt þar inn, virkilega, jafnvel líka algerar einkaframkvæmdir eins og Hvalfjarðargöngin þar sem áhættan er ekki á skattgreiðendum heldur á einkaaðilum sem koma inn með þekkingu og koma að verkefninu, eins og við þekkjum að Spölur gerði þetta. Tækifærin eru, hvort heldur sem er í innviðafélagi eða algerum einkaframkvæmdum, mjög mikil fyrir höfuðborgarsvæðið. Vandamálið er hins vegar hæstv. ríkisstjórn. Ég er ekkert viss um að hún sé með sömu forgangsröðun og aðrir. Hún virðist enn þá vilja setja stærstan hlutann af samgöngufénu hér á höfuðborgarsvæðinu í borgarlínuna. Það er miður þegar við gætum gert svo margt gott og hratt með því að breyta þeirri forgangsröðun og sérstaklega með nýju innviðafélagi eða, eins og ég segi, einhvers konar samstarfi við einkaaðila.