157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:13]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að halda áfram með samgönguáætlun hér í minni annarri ræðu. Ég náði ekki að klára það sem ég var að reyna að koma að í þeirri fyrstu og get vonandi klárað það í þeirri seinni. Ég endaði síðast þar sem ég talaði um þessa aukningu inn í samgönguáætlun á milli ára, sem er vel en mér finnst ekki nægjanleg. Ég held að við hefðum þurft að gera betur, sérstaklega í ljósi þeirra loforða sem voru höfð uppi fyrir áramót um auknar tekjur í samgöngumál vegna veiðigjalda, kílómetragjalds og vörugjalds. Það er alveg ljóst að það er ekki að ganga eftir í þessari samgönguáætlun og það er miður.

Það sem mig langaði hins vegar aðeins að ræða um, og ég held að það sé mikilvægt að við tökum umræðu um þetta hér, er gjaldtakan sjálf sem slík. Nú er það þannig, virðulegur forseti, að hugmyndin um innviðafélag er mér ekkert fjarlæg. Ég held að einhvers konar innviðafélag sé nauðsynlegt fyrir okkur til þess að við komumst hraðar í gegnum þau fjölmörgu verkefni sem okkar bíða í samgöngumálum á Íslandi; þá erum við að tala um að innviðafélagið reki sig á veggjöldum. Við erum sömuleiðis með fyrirbæri sem heitir borgarlína eða Betri samgöngur sem verður rekið með svipuð eða sömu prinsipp, þ.e. það verða rukkuð flýti- og tafargjöld á höfuðborgarsvæðinu. Það held ég að sé að mörgu leyti skynsamlegt. Við þurfum að ná að flýta þessum framkvæmdum. Það er kannski það sem ég er að reyna að koma hérna að, virðulegur forseti, og fyrir það munum við þurfa að greiða þessi gjöld.

Það sem ég vil benda á er að þegar ég reiknaði það saman hérna ekki fyrir löngu síðan — og ég verð að reiða mig á minni í þessu vegna þess að ég fann ekki blaðið hérna fyrir ræðuna sem ég var búinn að hripa þetta niður á. Þegar maður skoðaði kynningu á innviðafélaginu og áætlaðar tekjur út af veggjöldum, við í fjárlaganefnd höfum sömuleiðis fengið kynningu frá Betri samgöngum þar sem reiknilíkanið hefur verið kynnt fyrir okkur, og leggur það saman við 3,3 milljarða út af kílómetragjaldi, sem er ný viðbót í skattlagningu, þá reiknaðist mér til að við værum að áætla að fá rúma 42 milljarða á ári í nýjar tekjur af umferð. 42 milljarða á ári af veggjöldum, flýti- og tafagjöldum og kílómetragjöldum.

Það er alveg ljóst að með þessu, virðulegur forseti, erum við komin langt upp fyrir þetta 1,7%. Það er gott og blessað. En það sem ég held að við þurfum að ræða og þurfum að ræða í samhengi við innviðafélagið, sem við förum nú vonandi fljótlega í, er hvernig heildarmyndin spilast út í þessu. Hvernig sjáið þið þetta fyrirkomulag til framtíðar litið? Ætlum við að halda áfram að rukka kolefnisgjaldið? Ætlum við að halda áfram að rukka fyrir kílómetragjaldið? Ætlum við að rukka þessi veggjöld? Er þetta ekki orðið svolítið mikið, virðulegur forseti? Er þetta ekki að verða svolítið mikil byrði fyrir bílaeigendur að þurfa að fara að borga alla þessa skatta?

Ég held að við þurfum að taka raunverulega umræðu og alvöruumræðu um það. Sé þetta niðurstaðan og sé þetta leiðin, að fara í innviðafélag og fara í borgarlínu og fara að rukka veggjöld og flýti- og tafagjöld á höfuðborgarsvæðinu, þá held ég að við verðum að skera niður einhvers staðar annars staðar á móti fyrir bifreiðaeigendur, fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu. Ég held að það sé vel gerlegt og við getum vel náð því innan 1,7% af vergri landsframleiðslu.

Það er búið að ræða um þetta innviðafélag í mörg ár og mjög lengi. Þetta var rætt í fyrri ríkisstjórn og þar var rætt um nákvæmlega þessa hluti. Hvað getum við rukkað almenning um, hvað er hægt að teygja sig langt? Þar voru menn komnir á það að þeir þyrftu að hafa einhverja heildarsýn yfir þetta, það væri ekki hægt að bæta nýjum og nýjum álögum endalaust ofan á þá sem fyrir eru. Ég kalla svolítið eftir því að við tökum heildstæða nálgun á þetta, hvar skurðpunkturinn er og hvar sársaukamörkin eru. Ég held að við komumst ekki hjá því að ræða þetta í tengslum við samgönguáætlun og innviðafélagið.

Aðeins varðandi innviðafélagið, ég veit að það verður sérumræða um það hér síðar, en það er einhvern veginn þannig að það er eiginlega ekki hægt að tala um eitt án þess að tala um hitt í leiðinni. Ég held að grunnhugmyndin sé ekki fjarri lagi. En það sem við þurfum að skoða og þurfum bara að taka ákvörðun um er hvort okkur finnist það vera í lagi að með stofnun þessa innviðafélags, og ég tala nú ekki um með Betri samgöngum, séum við að færa ákveðið vald frá Alþingi. Við erum að færa vald frá Alþingi um það hvernig við ætlum að byggja upp okkar innviði og okkar samgöngur. Ég veit að auðvitað getur innviðafélag ekki farið og framkvæmt bara einhverja brú, göng eða vegspotta án þess að það sé stjórnsýslulegt samþykki fyrir því. Engu að síður, með því að gera svona, eins og hér er lagt til, þá erum við að fjarlægja þingið frá ákvarðanatöku að ákveðnu leyti. Það þarf að vera þannig til að innviðafélagið falli undir C-hluta félag og geti verið ohf.

Áhyggjurnar snúa kannski að því að innviðafélaginu beri þá bara samkvæmt lögum um hlutafélög að hugsa um arðsemi, rekstur þess og hagsmuni og að félaginu gangi vel. Þegar við erum að horfa á samgönguáætlun, eins og núna, þá erum við að horfa m.a. á samfélagsleg áhrif, byggðasjónarmið og öryggissjónarmið umfram arðsemi, enda er samgönguáætlun náttúrlega uppfull af verkefnum sem eru ekki arðbær en eru samfélagslega mikilvæg og skipta gríðarlegu máli fyrir byggðasjónarmið og ég tala nú ekki um fyrir öryggissjónarmið.

Virðulegur forseti. Mig langaði að koma þessu ranti á framfæri um þessa heildstæðu nálgun varðandi gjaldtökuna. Ég átti það eftir í minni fyrstu ræðu og ég hef nú komið því frá mér og ætla að segja þetta gott.