samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir ræðuna. Hann fjallaði að mestu leyti um gjaldtökuna og var að velta fyrir sér þessum flýti- og veggjöldum o.s.frv. Síðan fjallaði hann talsvert um innviðafélagið sem stendur til að stofna og ég held að við vonumst öll til að vel til takist með stofnun þess félags. Það verður að vanda til verka og það verður að gefa tíma fyrir umræðu.
Síðan er það annað. Mér finnst umræðan vera í öfugri röð. Við hefðum átt að ræða fjármálaáætlun fyrst, svo innviðafélagið og síðan samgönguáætlun vegna þess að þetta tengist allt. Það er í raun og veru ekki hægt að ganga frá samgönguáætlun fyrr en við vitum hvernig þetta innviðafélag mun líta út, það er bara mín skoðun, vegna þess að tengingin er svo mikil.
Þingmaðurinn var líka að velta fyrir sér heildarmyndinni og hvernig hún muni líta út. Hann hefur áhyggjur af því varðandi innviðafélagið, eins og það lítur út í frumvarpinu sem er reyndar ekki komið í umræðu, að vald færist frá Alþingi. Ég tek undir þær áhyggjur og spyr þingmanninn: Er hann með hugmyndir um hvernig hægt sé að tryggja að Alþingi og alþingismenn sem hér sitja (Forseti hringir.) geti haft áhrif á innviðafélagið eftir að það hefur verið stofnað? Þá er ég að spyrja sérstaklega varðandi uppsetningu þess.