samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Varðandi röðina á þessum málum: Já, ég held að það hefði alveg getað farið vel á því að innviðafélagið væri rætt fyrst en ég hef nú verið þeirrar skoðunar að fjármálaáætlun eigi að vera rædd síðust og að fjárlögin eigi að vera rædd síðust þannig að þær breytingar sem eru gerðar á öðrum lögum í aðdraganda geti komið inn í breytingu á fjármálaáætlun og fjárlögum. Það hefur verið mín mantra hér í þinginu að ef við eigum að breyta einhverju þá ættum við að sjálfsögðu að enda á fjárlögum og fjármálaáætlun þegar við erum búin að laga og jústera þær breytingar sem eru í öðrum lögum og áætluninni sem við erum að samþykkja hér þannig að við höfum sem réttasta mynd af áætlun fram í tímann hvað varðar fjármálin.
Já, valdið færist fjær. Það er alveg rétt. Ég held að það sé alveg óumdeilt. Það er bara einn af fylgifiskum þess að við erum að stofna innviðafélag og við erum að fara gera það að C-hluta félagi til þess að við getum haldið skuldunum fyrir utan A-hlutann. Fyrir því eru bara ágætisrök. En því fylgir sá galli að þar með verður að draga línu milli pólitískt kjörinna fulltrúa og stjórnar félagsins. Leiðin er náttúrlega sú að við getum gert þetta að A-hluta félagi. Ef þú gerir þetta að A-hluta félagi þá er þetta ekki lengur vandamál. Þá getum við verið með pólitískt kjörna fulltrúa en þá ertu bara kominn með þetta á samgönguáætlun; það er kannski vandamálið. Þá ertu kominn með samgönguáætlun A og samgönguáætlun B og kannski einhver PPP-verkefni sem við getum hvort sem er farið í núna. (Forseti hringir.) Þetta er leiðin, það er hægt að gera þetta svona.