samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Ég átta mig ekki alveg á hvaða áhyggjum við deilum ekki. Ég held að við höfum akkúrat haft nákvæmlega sömu áhyggjur, ég og hv. þingmaður, um að valdið væri að færast fjær. Af því hafði ég áhyggjur og lýsti hér í minni ræðu.
Varðandi samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins þá eru 7 milljarðar, ef ég man rétt, á ári út tímabil áætlunarinnar sem eru eyrnamerktir og fjármagnaðir í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Það er hins vegar stór hluti af honum sem er ekki fjármagnaður sem verður fjármagnaður með þessum tafa- og flýtigjöldum. Þetta er bara sama hugmyndafræðin og við erum að ræða hér varðandi innviðafélagið. Ríkið á stóran hluta af vegum á höfuðborgarsvæðinu, stofnbrautunum, og við getum tekið ákvörðun um það að fjármagna þær í samgönguáætlun. Þá er minna til í framkvæmdir á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum, Austurlandi … (IngD: Vesturlandi.) — Vesturlandi, hárrétt, ég ætlaði að enda þar, heima hjá hv. þingmanni. Þetta er bara ákvörðun sem við þurfum að taka hér. Þetta var leið sem var farin til að reyna að — nákvæmlega eins og er verið að gera hér með innviðafélaginu, sýnist mér. Þetta er bara verkefni sem menn fóru í til að reyna að hraða framkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu og komast í dýrar og kostnaðarsamar framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu án þess að tæma samgönguáætlun. Menn geta haft allar heimsins skoðanir á því. Mér hefur fundist þetta verkefni ekki ganga nægilega vel, ef ég á að segja alveg eins og er. Mér hefur fundist framgangur verkefnisins ekki nægilega skipulagður og ekki nægilega skýr. En ég skil hugmyndafræðina sem þarna liggur að baki mér. Hún er hún er mér ekki óljós, virðulegur forseti.