samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Í síðustu ræðu minni var ég að fjalla um ferjumálin sem eru ekki í nægjanlega góðu ástandi. Ég var sérstaklega að ræða Herjólf og síðan Baldur; Herjólfur fer á milli lands og Eyja og Baldur er Breiðafjarðarferjan. Ég boðaði áðan að ég myndi í þessari ræðu fara betur inn í þetta nýjasta mál sem komið er upp hvað þetta varðar og ég veit að fleiri þingmenn hafa tekið þetta upp hérna í dag.
Málið sem mig langaði að fjalla sérstaklega um snýr að því að núna er verið að taka ferjuna Baldur, sem siglir á milli Stykkishólms og Brjánslækjar, úr þjónustu til að setja hana í þjónustu á milli lands og Eyja; þ.e. á milli lands og Vestmannaeyja. Að þessu sinni er þetta ekki gert vegna þess að Herjólfur er bilaður, þó að hann sé að sigla á einni skrúfu. Þetta er gert til þess að anna straumi fólks á milli lands og Eyja. Ég vil bara minna á það þessu tengt að ég held að þetta sé ekki partur af samningnum sem hefur verið gerður varðandi Baldur; hún er varaferja fyrir Eyjar, fyrir Herjólf, en eingöngu, held ég, þegar Herjólfur getur ekki siglt. Ég er ekki viss um að þetta geti staðist, að þessi aðgerð sé gerð.
Mig langar að vitna sérstaklega til sveitarstjóranna í Stykkishólmi, Vesturbyggð og Reykhólahreppi. Þeir harma þessa ákvörðun innviðaráðherra og hafa sent frá sér sameiginlega ályktun. Ég deili áhyggjum þessara aðila vegna þess að auðvitað er ákveðin hætta á því að svona ráðstöfun skapi fordæmi; ef það er búið að gera hlutinn einu sinni, af hverju ekki að gera hann aftur? Fyrir utan það að menn telja að þetta sé ekki hluti af samkomulaginu sem er um að Baldur sé varaferja fyrir Herjólf. Síðan er þetta: Ferjan Særún, sem leysir af á meðan Baldur er tekinn með engum fyrirvara, getur ekki sinnt nákvæmlega því hlutverki sem Baldur hefur gert. Hún siglir ekki frá Stykkishólmi til Brjánslækjar. Hún fer bara á milli Stykkishólms og Flateyjar. Það eru mjög mikil vandkvæði bundin við það.
Ég las það m.a. í fjölmiðlum í dag að vinnsla væri í uppnámi. Það er verið að landa afla í Flatey sem fluttur er til vinnslu í Stykkishólmi og þar er sagt að allt sé í uppnámi því að þetta farþegaskip nær ekki að anna þessu. Mig langar að vitna til yfirlýsingar bæjarstjóranna á svæðinu, með leyfi forseta:
„„Ef við hefðum vitað þetta fyrr, fyrir fjórum vikum eða tveimur mánuðum, að þetta væri fyrirhugað, þá væri hægt að gera einhverjar ráðstafanir og undirbúa en núna er þetta bara að koma einn tveir og tólf og það er ekki búið að undirbúa neitt,“ segir hann og að það þurfi að breyta öllum ráðstöfunum varðandi uppbyggingu Orkubús Vestfjarða í júní því flutningar skerðist. Þetta [sé eitt dæmið] um áhrifin af þessari ákvörðun.“
„Ef við hefðum vitað þetta fyrr, fyrir fjórum vikum eða tveimur mánuðum, að þetta væri fyrirhugað, þá væri hægt að gera einhverjar ráðstafanir og undirbúa en núna er þetta bara að koma einn tveir og tólf og það er ekki búið að undirbúa neitt,“ segir [bæjarstjórinn í Stykkishólmi] og að það þurfi að breyta öllum ráðstöfunum varðandi uppbyggingu Orkubús Vestfjarða í júní því flutningar skerðist. Þetta [sé eitt dæmi] um áhrifin af þessari ákvörðun.“ (Forseti hringir.)
Þetta virðist vera í samningi. Það er einnig vitnað til þess að það megi ekki taka Baldur undir (Forseti hringir.) þessum kringumstæðum. (Forseti hringir.) Aðstæðurnar eru grafalvarlegar og maður hefur heyrt af því sérstaklega í Vesturbyggð — afsakaðu, forseti, ég ætla ekki að tala um þetta aftur í bili — að það séu að eiga sér stað afbókanir í ferðaþjónustu. Ég meina ferðaþjónustutímabilið á þessu svæði er mjög stutt. (Forseti hringir.) Þetta er bara mjög vont fyrir atvinnustarfsemi á þessu svæði.
(Forseti (KÁB): Forseti vill minna hv. þingmenn á að virða ræðutímann hverju sinni.)