157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:38]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Hér hefur í tvo sólarhringa verið rætt um samgönguáætlun og þetta er mjög áhugaverð umræða. Eðli málsins samkvæmt þá snýst hún mjög mikið um samgöngur víðs vegar um landið og fyrirferðarmestir í þessari umræðu hafa verið þingmenn landsbyggðarinnar eins og jafnan er. Það er í mörg horn að líta þar og við þurfum kannski ekki að fara mjög mörgum orðum um það hversu mikilvægar öruggar, greiðar og góðar samgöngur eru fyrir okkur öll og fyrir alla landshlutana, fyrir landshlutana sem eiga allt undir því að þangað komi fólk, þangað sæki fólk atvinnu og þar búi fólk. Það er náttúrlega grundvallarbyggðasjónarmið, að íbúar í landinu geti gengið að samgöngum sem vísum. Við þekkjum dæmi um það þegar þær fara úr skorðum hvernig heilu samfélögin eiga erfitt, eins og t.d. nýlegt dæmi frá Vestmannaeyjum sýnir, og hvernig allur grundvöllur íbúa, fyrirtækja og annarra riðlast þótt þær falli kannski niður bara um skamman tíma, traustar og góðar samgöngur.

Samgöngur eru náttúrlega að mestu leyti fyrst og fremst fyrir íbúana sem í landinu búa en það er orðið þannig að ein helsta útflutningsgrein okkar, ferðamannaþjónustan, á gríðarlega mikið undir því líka að samgöngur séu góðar og hlutir fari ekki úr skorðum. Hér hafa komið fram talsverðar, eins og maður hefur fylgst með, áhyggjur. Því er lýst yfir að samgönguáætlunin sé fullfjármögnuð og það hefur verið rætt dálítið fram og til baka. En mig langar til að fara aðeins í það kjördæmi sem ég er fulltrúi fyrir, Suðvesturkjördæmi, Kragann svokallaða. Eins og ég kom inn á áðan í stuttu andsvari þá hafa fulltrúar höfuðborgarsvæðisins, Reykjavíkur og Kragans, kannski minna verið að fjalla um þessi mál, auðvitað með undantekningum, en þau eru náttúrlega ekki síður mikilvæg hér á þessu svæði og við sjáum það, vitum, heyrum og upplifum á hverjum degi þann mikla umferðarþunga og þær umferðarteppur sem verða á þessu svæði. Í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum voru samgöngumálin fyrirferðarmeiri en ég hef nokkru sinni upplifað síðastliðin 20 ár eftir að ég fór sjálf að taka þátt í sveitarstjórnarmálum. Samgöngumálin á þessu svæði hafa aldrei nokkurn tímann verið eins fyrirferðarmikil og núna og það er mikill skilningur á því, því að ástandið hefur snarversnað mjög hratt.

Það hefur verið gerður samgöngusáttmáli fyrir höfuðborgarsvæðið sem hefur náttúrlega staðið styr um og einkum hafa þeir sem hafa stjórnað Reykjavíkurborg verið dálítið mikið á skjön við meiri hluta í nágrannasveitarfélögunum um hvernig beri að nálgast þetta. Þegar samgöngusáttmálinn var undirritaður þá voru áherslur í Kragasveitarfélögunum flestum, vil ég alla vega fullyrða, þeim stærstu, þær að tryggja að langþráðar og mikilvægar úrbætur á samgöngumannvirkjum næðu í gegn og yrðu fjármagnaðar og það sæi til botns í því að þær yrðu loksins að veruleika á meðan áherslurnar voru kannski aðrar í Reykjavík. Við vitum eftir kosningabaráttuna og núna eftir að nýr meiri hluti hefur tekið við í Reykjavíkurborg að það er kominn samhljómur á höfuðborgarsvæðinu öllu um það að samgöngusáttmálinn verði endurskoðaður með það í huga að breyta áherslum að einhverju leyti. Það á eftir að koma í ljós hversu langt það mun ganga og til hvaða tilgreindra atriða sú endurskoðun mun ná.

Við vitum að skipulagsmál og samgöngumál eru svo nátengd og svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, sem hefur verið við lýði, gerir ráð fyrir því að þétt verði á ákveðnum svæðum, meira sums staðar og minna annars staðar, mest hér í höfuðborginni og samgönguæðarnar og -málin hafa verið skipulögð nokkuð mikið út frá því. Þegar maður ræðir skipulagsmál tengd samgöngumálum þá eru kannski bestu dæmin um það, eða verstu dæmin, ég veit ekki hvernig ég á að orða það, hversu mikið klúður hefur orðið eins og hér í höfuðborginni, dæmin sem varða staðsetningu stórra stofnana. Við erum með á ákveðnum bletti tvær háskólastofnanir og svo stærsta vinnustað landsins sem bara stækkar og stækkar, Landspítala, fyrir utan aðrar stofnanir sem eru hérna í 101 og þar í kring. Bara sá faktor að þessir gríðarlega fjölmennu vinnustaðir hafi verið skipulagðir og byggðir á sama blettinum nánast er kannski að valda einu af stærstu vandamálunum sem við blasir í Reykjavík og nágrenni: Allir að fara á sama tíma í sömu átt. Það er erfitt að draga í land með þetta eða fara eitthvað til baka en þetta er alveg rosalega skýrt dæmi um hvers konar skipulagsslys það var að setja niður þessar fjölmennu atvinnustofnanir á sama blettinum.

Ef ég fer aðeins inn í kjördæmið sem ég er fulltrúi fyrir, Suðvesturkjördæmi, þá er þetta náttúrlega allt höfuðborgarsvæðið og þarf ekki að lýsa því að það er allt sama atvinnusvæðið og við förum á milli án þess kannski beinlínis að taka eftir því. Flæði bíla og fólks er gríðarlega mikið á milli og því skipta teppur á einum stað mjög miklu máli fyrir alla á svæðinu. Í samgöngusáttmálanum þar sem framkvæmdum hefur verið forgangsraðað og ákvarðanir teknar um strætólínuna, eins og ég vil kalla hana, borgarlínuna, hvernig hún skuli ganga, er allt með heildarhagsmuni svæðisins í huga. En ég vil taka það fram og hef svo sem gert það áður að þegar samgöngusáttmálinn var undirritaður var ljóst og er ljóst að skipulagsvald í hverju sveitarfélagi ræður mjög miklu um hvernig hlutirnir eru gerðir. Þótt ákveðið svæðisskipulag hafi verið gert og búið til þá var enginn sem skrifaði meðvitað upp á það að götur yrðu þrengdar í höfuðborginni í einhverju því skyni að fækka bifreiðum. Það var enginn af þeim sem komu þar að, a.m.k. enginn sem maður veit til, sem áttaði sig á því að sú yrði raunin fyrr en að skipulagsyfirvöld eins og í höfuðborginni fóru einmitt þannig fram með málið. Þess vegna skilur maður svo vel hversu mikil óánægja hefur verið með þróun mála hvað það varðar. Við getum tekið Suðurlandsbrautina sem dæmi, það er nýjasta dæmið, og sem betur fer hefur nýr meiri hluti í Reykjavíkurborg boðað að það verði hið snarasta horfið frá þeim hugmyndum sem þar höfðu verið bornar á borð.

Ég er hér að tala um samgöngusáttmálann þótt hann sé mjög lítið inni í samgönguáætlun, hann er aðeins útskýrður og farið yfir helstu þætti hans. En í þessari umræðu er mjög mikið fjallað líka um innviðafélagið sem verður á dagskrá fljótlega í þinginu. Þeir sem hafa verið að vinna hvað mest í þeim málum í viðeigandi nefndum virðast hafa mjög skiptar skoðanir á því, sem sagt það virðist ekki vera mjög skýrt fyrir þeim og ekki sami skilningur á því hvernig þetta innviðafélag á að virka og hvernig það kemur til með að verða. Það er mjög brýnt áður en farið er að vísa hlutum úr samgönguáætlun inn í óstofnað innviðafélag sem menn hafa mismunandi skilning á — það hefði verið mjög brýnt að hlutunum hefði verið snúið við og innviðafélagið hefði verið á undan á dagskránni. En það má taka undir það að með stofnun innviðafélags séu að skapast möguleikar til að ráðast í svona afmörkuð og stærri verkefni. Hugmyndafræðin er á þann veg að þetta gæti verið hentugt og sniðugt en þá þarf fólk náttúrlega að hafa sama skilning á því hvað um ræðir áður en það verður að lögum. Það hafa komið fram miklar áhyggjur af því að það sé margt óútfært og það verður áhugavert að fylgjast með umræðunni seinna í kvöld eða á morgun alla vega og á allra næstu dögum um það hvernig þetta félag eigi raunverulega að virka og hvaða verkefni verður hægt að setja þar inn.

Fyrir það svæði sem ég er fulltrúi fyrir, höfuðborgarsvæðið og Suðvesturkjördæmi, þá er alveg spennandi tilhugsun að brýnt verkefni eins og Setbergsgöng gæti orðið nokkurs konar flýtiframkvæmd og mögulega farið inn í þetta óstofnaða og óljósa innviðafélag, það gæti alla vega verið einhver leið, því að Setbergsgöng væru gríðarlega mikilvæg samgöngubót í Hafnarfirði. Það vill svo til að teppan sem er í Hafnarfirði er til komin vegna þess að tugþúsundir bíla fara í gegnum bæinn, fara yfir Reykjanesbrautina og skera í rauninni bæinn endilangan, tugþúsundir bíla sem flestir og mjög margir eru fyrst og fremst að fara í Reykjanesbæ, á flugvöllinn, það eru vöruflutningar og slíkt, en líka vegna þess að atvinnusvæði hafa byggst mjög hratt og mikið upp á Hraunum og í Vallahverfi í Hafnarfirði vegna þess að þar hefur verið nægt framboð af lóðum. Fyrirtæki sem hafa hreinlega flúið höfuðborgina á undanförnum árum hafa sóst í lóðir þar. Umferðin verður m.a. af þeim sökum mjög þung og er gjörsamlega óþolandi fyrir Hafnfirðinga sem þurfa að komast á milli hverfa og komast út úr sínum hverfum. Þótt lagfæringar á þessum kafla sem er hvað verstur frá Lækjargötu að Kaplakrika séu núna betur fjármagnaðar í samgöngusáttmálanum en áður var í samgönguáætlun, áður en til samgöngusáttmálans kom, þá er ljóst að áhugi Hafnfirðinga liggur til þess að það verði gerð göng og þau eru dýrari en þessir 11, 12, 13 milljarðar sem eru í samgöngusáttmálanum núna til lagfæringa þarna. Þannig að maður hefur alveg séð fyrir sér að einhvers konar flýtiframkvæmd í einhverjum slíkum samningum yrði að koma til. Og ef innviðafélag gæti hjálpað til í þeim efnum væri það mjög áhugavert því að það er gríðarlega mikilvægt að einhvers konar flýtiframkvæmd verði á þessum kafla. Það er búið að bíða eftir endurbótum þarna í rauninni í aldarfjórðung og síðan hefur ástandið versnað og versnað með hverju árinu á stækkandi svæði sem er höfuðborgarsvæðið allt og með þessari gríðarlega miklu fjölgun ferðamanna sem hefur orðið hér síðastliðinn áratug. Við erum vonandi flest ánægð með hann enda gríðarlega mikilvæg útflutningsgrein að sinna ferðamönnum en það hefur ekki verið hugsað um að þeir þurfi að fara á milli og þarna myndast ólíðandi teppa og þetta er ástand sem verður að fara fyrr á dagskrá. Þótt samgöngusáttmálinn geri ráð fyrir því að bætur á veginum verði innan örfárra ára þá er ljóst að ef til Setbergsganga á að koma þá þarf að fara einhverja svona einkaframkvæmdarleið eða flýtiframkvæmdarleið og því hljómar, eins og ég er að segja hérna, dálítið spennandi og áhugavert að sjá hvort þau gætu passað inn í þetta fyrirhugaða innviðafélag.

Í fyrri umræðu um samgönguáætlun í janúar, held ég að það hafi verið, þá lagði ég mikla áherslu á og mun gera það í síðari ræðum hér á eftir, að Flóttamannavegurinn svokallaði verði betur settur á dagskrá. Um er að ræða veg sem heitir Elliðavatnsvegur en er kallaður Flóttamannavegur og liggur í gegnum Hafnarfjörð, Garðabæ og endar í Kópavogi. Það hefur ekki verið sátt um það milli sveitarfélaganna í langan tíma að byggja þennan veg betur upp. En sú sátt náðist fyrir tveim, þrem árum og var myndaður starfshópur um að byggja hann upp því það fara 2.000–3.000 bílar þar í gegn nú þegar á dag og þetta er gríðarlega mikilvæg samgönguleið fyrir þá sem fara á milli þessara sveitarfélaga, ég tala nú ekki um mikilvægi þess að hafa þennan veg öruggan og greiðan þegar til stóru framkvæmdarinnar kemur sem vonandi verða Setbergsgöng.