157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:58]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hún hefur náttúrlega sem bæjarstjóri í mörg ár mikla reynslu af þessum skipulagsmálum og hinum svokallaða höfuðborgarsáttmála eða samgöngusáttmála á höfuðborgarsvæðinu, eins og vísað er til hans í þessari samgönguáætlun. Mig langar að spyrja hv. þingmann um afstöðu hennar til þessa samgöngusáttmála og hvernig þingmönnum er ætlað í rauninni að styðjast við hann. Hann hefur, ef ég man rétt, verið uppfærður og er gjörbreyttur frá því hann var gerður árið, hvenær var það, 2018, 2019. (Gripið fram í: 2019. )Og svo hefur hann tekið einhverjum breytingum. En sáttmálinn sjálfur hefur auðvitað aldrei komið hingað til þingsins til neinnar afgreiðslu. Þingið er í rauninni alveg óskuldbundið af þessum samgöngusáttmála og öllu því sem kveðið er á um í þessum samgöngusáttmála verður ekki hrint í framkvæmd með ríkisfé öðruvísi en að þingið komi að því.

Mig langar að spyrja hv. þingmann út í þetta samspil, hvort hún gæti kannski lýst reynslu sinni sem bæjarstjóra sem þarf að hafa augun á skipulagsmálum í sínu sveitarfélagi. Í hvaða stöðu eru bæjaryfirvöld á hverjum stað þegar málum er skipað með þeim hætti að það er samgönguáætlun sem lögð er hérna fyrir þingið, og hefur ekki verið gert lengi, en síðan til hliðar er einhver samgöngusáttmáli sem er algerlega ófjármagnaður og virðist vera alveg úr tengslum við samgönguáætlun? Þótt það sé oft og ítrekað vísað í þennan samgöngusáttmála hefur hann hvorki verið lagður fram hérna einu sinni með þessari samgönguáætlun né nokkurn tímann ræddur í þinginu.