157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:01]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Já, hafandi verið hinum megin við borðið þegar þetta allt átti sér stað þá náttúrlega lítur það einkennilega út að hann hafi ekki komið til umræðu hérna. Þarna voru það ráðherrar viðkomandi ráðuneyta sem báru ábyrgðina og ljóst er að ákveðinn hluti fjármögnunarinnar, hvað ríkishlutann varðar, er enn, eins og þingmaðurinn bendir réttilega á, nokkuð óljós. Sveitarfélögin hafa verið að kalla eftir því og verið að benda á að svo sé, og Keldnalandið er þarna undir. En það er ákveðin stjórn sem hefur verið sett yfir samgöngusáttmálann og við endurupptöku hans — það var ekki beint endurskoðun á sáttmálanum fyrir tveimur árum heldur var farið að lengja í sumum framkvæmdum og öðrum ekki — var það sem gerðist að fulltrúar sveitarfélaganna fengu beinni aðkomu að stjórn Betri samgangna. Þeir eru þar með ákveðnar við það borð og ættu að geta fylgst með því og eru að ýta á það að fjármögnunarleið ríkisins verði skýr og skýrari. Sveitarfélögin eru sannarlega farin að greiða inn í þennan sáttmála og eru einhver að byrja að fá sínar fyrstu samgöngubætur. En ég tek undir að það er einkennilegt að þetta hafi í rauninni lítið verið hér til umfjöllunar.