157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:03]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður nefnir Setbergsgöng og að það sé mikill áhugi fyrir því í Hafnarfirði að framkvæmdir hefjist við göng undir Setberginu sem myndi létta á umferðinni í gegnum Hafnarfjörð, stytta vegalengdina frá Keflavík, sem margir á höfuðborgarsvæðinu þurfa að sækja mjög reglulega, stytta þá fjarlægð og svona liðka fyrir. Það er mikilvægt að halda því til haga að það mikilvægasta við þá hugmynd er að Setbergsgöngin væru ný umferðaræð, ekki bara göng til að færa einhverja umferð sem þegar rennur ofan jarðar, eins og er umræða um í Reykjavík, að færa þau niður í jörðina til að gera ökumenn að einhverjum moldvörpum, íbúa Reykjavíkur, en ég mun koma inn á það í ræðu minni á eftir. Setbergsgöngin eru áhugaverð að þessu leyti og því ekki að undra að Hafnfirðingar vilji fá þá framkvæmd. En þá spyr ég, af því að ég hef ekki skoðað þessa samgönguáætlun með tilliti til þess: Er einhver von til þess að þessi samgönguáætlun og þetta svokallaða innviðafélag, sem er annað þingmál hérna, grípi þessa hugmynd og geri hana að veruleika miðað við hvernig samgönguáætlun er sett hér fram í þessu? Hv. þingmaður nefndi einhverjar tölur í þessu sambandi sem ágætt væri að hún færi yfir. Allt að einu rekur mig ekki minni til þess að hafa séð Setbergsgöngin eyrnamerkt sem heppilega framkvæmd fyrir þetta nýja innviðafélag. Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að hægt yrði að hrinda í framkvæmd þessum Setbergsgöngum?