samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Takk fyrir þetta andsvar. Það er nú ánægjulegt að segja frá því að í meirihlutaáliti með þessari þingsályktunartillögu er loksins verið að nefna þessa samgöngubót og, með leyfi forseta, ef ég vitna í meirihlutaálitið, sem ég er ánægð að sjá að sé nefnt, þá er nefnt hérna að til viðbótar við það sem er komið inn í samgönguáætlun verði fjögur verkefni tekin til sérstakrar skoðunar án fjármögnunar á þessu stigi og bætt við samgönguáætlun og stjörnumerkt sem slík. Þar eru Setbergsgöng í Hafnarfirði einmitt nefnd, sem er mjög ánægjulegt að sjá og það verður fróðlegt og áhugavert að fylgjast með þessari umræðu sem mun eiga sér stað núna um innviðafélagið. Það er sem sagt verið að nefna hérna, og í fyrsta sinn sem ég sé það, að þetta geti orðið slík framkvæmd og þá bindur maður vonir við að ef þetta virkar allt eins vel og vonir standa til og á eftir að sannfæra þingheim og aðra um, að allir séu að skilja hlutina rétt og slíkt, að þetta gæti orðið flýtiframkvæmd þar inni, vonandi. Ég yrði fyrst manna til að styðja það og verð bara að segja að ég var mjög ánægð að sjá þetta nefnt hérna þótt á þessu stigi sé skiljanlega ekki komin inn fjármögnun, auðvitað ekki. En það er þó alla vega verið að nefna þetta og orð eru til alls fyrst, þannig að sjáum hvað setur.