samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér samgönguáætlun og þessi þingsályktunartillaga, sem á að vera grunnur að öllum framkvæmdum sem snúa að samgöngum, hefur þá sérstöðu að mjög stór hluti, kannski stærsti hluti, samgangna í landinu, er einhverra hluta vegna ekki inni í samgönguáætlun. Ég hef ákveðnar áhyggjur af forminu í því, þ.e. ég hef áhyggjur af því að það gæti orðið erfitt að láta það standast að hafa stærstu samgönguframkvæmdirnar fyrir utan, þá er ég að vísa sérstaklega til samgöngusáttmálans. Eins og ég skil málið er það samkynja rammanum svokallaða, er sama eðlis og ramminn sem við göngum frá þegar kemur að orkunýtingu. Þar þarf að tilgreina sérstaklega allar þær virkjanir sem eru stærri en ákveðinn megavattafjöldi til að heimilt sé að fara í þá vegferð. En við erum hér með yfir 300 milljarða framkvæmdir sem eru þær framkvæmdir sem heyra undir svokallaðan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem eru ekki tilgreindar í þingsályktunartillögunni. Framkvæmdanna er ekki getið en samgöngusáttmálans er getið á bls. 102 í greinargerð með þingsályktunartillögunni. Ég hef áhyggjur af því að þetta gætu orðið vandræði. En ég hef þó meiri áhyggjur af því að við séum ekki að ræða þessa 300 milljarða framkvæmdir sem eru í samgöngusáttmálanum. Þetta eru 300 milljarðar. Þetta eru ekki 30 milljarðar, þetta eru ekki 3 milljarðar, þetta eru ekki 300 milljónir, ekki 3 milljónir, ekki 300.000, þetta eru 300 milljarðar.
Virðulegi forseti. Hér koma menn upp og við erum að takast á í nefndum um almennt miklu, miklu minni stærðir og upphæðir. Inni í þessum 300 milljörðum er gert ráð fyrir fjármögnun. Stærstur hluti þessarar fjármögnunar er eitthvað sem við ræðum heldur ekki neitt. Það eru 143 milljarðar sem eiga að vera veggjöld. 143 milljarðar, virðulegi forseti. Er einhver að ræða þetta? Er þetta í einhverri nefnd þingsins? Reyndar er það þannig að samkvæmt upphaflegum áætlunum þá ætti að vera byrjað að innheimta þessi gjöld. Ég er alveg meðvitaður um það eða það er mín skoðun að við þurfum að framkvæma stærri samgöngumannvirki og við komumst ekkert hjá því að hafa, við verðum að hafa veggjöld, svipað og var með Hvalfjarðargöngin. En við þurfum að hafa samræmi í því og réttlæti og það sama þarf að ganga yfir alla um allt landið. Ég vek athygli á því að þetta er allt saman á fleygiferð og það er enginn að ræða þetta. Aftur: Þetta eru 143 milljarðar.
Annar þáttur fjármögnunarinnar er svokallað Keldnahverfi. Guð einn veit en allt í einu varð þetta til fyrirtæki sem enginn ber ábyrgð á og enginn stýrir og enginn kannast við, Betri samgöngur, með land í miðju borgarinnar eða miðjum austurhluta borgarinnar, Grafarvogshverfi, sem heitir Keldnaland. Þar er búið að eyða 100, 200 milljónum í fullkomna þvælu, en það er hönnun Keldnalandsins. Verðlaunatillagan sem menn eru að vinna með og voru að vinna með í fyrri borgarstjórnarmeirihluta gengur út á að það á að setja eyju út í miðjan Grafarvoginn en það er núna friðlýst svæði, í það minnsta, þótt það sé ekki alvörufriðlýsing þá eru alla vega leirurnar friðlýstar af ástæðu, vegna þess að þar er gríðarlega mikið fuglalíf. Þetta er einstök náttúra í miðri borg. Það var sem sagt í verðlaunatillögunni. En látum það liggja milli hluta. Ég gef mér það nú að þó svo að menn hafi borgað yfir 100 milljónir fyrir þessa verðlaunatillögu þá hafi enginn ætlað sér að framkvæma alla vega þennan þátt hennar.
Það sem menn ætla að framkvæma, virðulegi forseti, er hverfi í austurhluta borgarinnar með engum bílastæðum svo heitið geti, engin bílastæði við húsin og þeir sem þar búa, ef hverfið verður byggt, myndu þurfa að ganga mörg hundruð metra á bílastæðið sitt, einu bílastæði fyrir viðkomandi íbúð. Allt einhver þvæla og meira að segja verktakar hafa sagst ekki ætla að taka þátt í þessu. Nýr borgarstjórnarmeirihluti hefur lýst því yfir og nýr borgarstjóri hefur lýst því yfir, og lofaði því fyrir kosningar, að þetta verði allt saman endurskoðað. En, virðulegi forseti, þetta er eitt af stóru málunum í samgöngumálum landsins og þetta félag, Betri samgöngur, er í 99,9% eigu ríkisins. Þetta er ekkert rætt í þingsal en þetta er klárlega á ábyrgð ríkisins og okkar alþingismanna.
Virðulegur forseti. Svo er það Sundabrautin. Þar hefur mönnum tekist með þvermóðsku og með því að neita að horfast í augu við augljósar staðreyndir að fara af stað með þá framkvæmd, nákvæmlega eins og menn eru búnir að gera nokkrum sinnum frá því að þetta kom fyrst fyrir 30 árum síðan. Alveg eins og var búið að útskýra fyrir þessu ágæta fólki, þessum nafnlausu embættismönnum, þá í fyrsta lagi ná menn ekki markmiðunum með Sundabraut, sem eru að létta á umferð og koma fólki inn í borgina. Í öðru og reyndar öðru, þriðja og fjórða lagi mun þetta valda slíkum búsifjum fyrir íbúa, hvort sem er í Laugardal eða Grafarvogi, þetta mun stórlega verðfella Geldinganesið og það er ekki tekið inn í arðsemismat og er ekki tekið inn þegar menn eru að meta það hver sé hagkvæmasti kosturinn. Það er augljóst að það verður mikill vandi að koma þessu máli í gegn eins og lagt er upp með. Þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir fyrir mörgum árum síðan um að menn skyldu koma með þriðju útfærsluna, alvörugangaleið, þá hefur það ekki verið gert. Ég hef miklar áhyggjur af því að þetta samgöngumannvirki sem verður að koma, þessi samgöngubót, muni tefjast og bera skaða út af þessari þvermóðsku.
En þetta er ekki rætt, það er eins og enginn beri ábyrgð á þessu. Þetta er ekkert smámál, virðulegi forseti, ekkert smámál. Ég vek athygli á því að öllum spurningum sem að þessu máli snúa hefur ekki verið svarað af hálfu framkvæmdarvaldsins og þegar einni spurningu var svarað, nánar tiltekið var það spurning um arðsemi einstakra framkvæmda sem eru margar innan samgöngusáttmálans, þá svaraði framkvæmdarvaldið með útúrsnúningi. En forseti þingsins brást rétt við og sendi það til föðurhúsanna þannig að væntanlega fáum við alvörusvar við því. En burt séð frá því: Hvernig má vera að við séum ekki að ræða þessi mál þegar við erum að ræða samgönguáætlun? Hvernig má það vera? Og nú er ég ekki farinn í innviðafélagið. En nú er það þannig að þessi samgönguáætlun er svo langt frá því að vera fjármögnuð. Við erum ekkert búin að ræða veggjöldin eða Keldnalandið, hvernig við ætlum að framkvæma það. Það er náttúrlega mjög stór hluti af fjármögnuninni. Það er varla nokkur króna í jarðgangaáætlun. Menn segja að innviðafélagið eigi að gera það en með okkar bestu upplýsingar og ekki úr nefndinni heldur á göngum þingsins, með því að tala við sérfræðinga, þá liggur það fyrir — og það er svo sem augljóst, þú töfrar ekki fram neina peninga úr innviðafélagi, viðkomandi samgöngumannvirki þurfa að standa undir sér — að hvað varðar göng sem t.d. er búið að lofa eins og Fljótagöng þá vantar 18,5 milljarða af ríkisfé til að hægt sé að byggja þau. En það er búið að lofa því að þau fari af stað á næsta ári. Síðan lofa menn líka því að virkjanir séu byggðar á Vestfjörðum, virkjanir sem krefjast þess að það verði farið í vegabætur (Forseti hringir.) upp á í það minnsta milljarð króna. Það er ekki í þessari samgönguáætlun og það er ekki rætt. (Forseti hringir.)
Virðulegur forseti. Þetta er algerlega ófjármögnuð samgönguáætlun og ófært að við séum ekki að ræða þessar stóru upphæðir.