157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:19]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Ég ætla eiginlega að byrja þar sem hv. þingmaður endaði sem varðar Fljótagöngin. En miðað við tölurnar og töluna sem hv. þingmaður nefndi þá liggur náttúrlega algjörlega fyrir að það yrði að vera A3-framkvæmd, sem er í raun og veru bara ríkisframkvæmd, þá eru 90% af framlögunum frá ríkinu þannig að það er ekki einhver töfralausn að stofna þetta innviðafélag í því samhengi. Það verður að vera svokallað dótturfélag A3 sem tæki það og þá með ríkisábyrgð. En annað sem hv. þingmaður fjallaði um, sem mér þótti áhugavert, er að setja þessa spurningu í samhengi við hugtakið greiðsluvilja. Ef ég hef tekið rétt eftir þá eru í þessum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og hjá Betri samgöngum, áætlaðir einhverjir 311 milljarðar og þar sé reiknað með 143 milljörðum í veggjöld. Tók ég rétt eftir, hv. þingmaður? Hvernig á að orða svona spurningu? Það bara bætist við og bætist við. Á einhverjum tímapunkti er greiðsluviljinn búinn. Það er búið að hækka kolefnisgjöld, það er búið að setja á glórulausa kílómetraskatta, það á að hækka vörugjöld og svona heldur listinn bara áfram. Og nú er enn verið að bæta í upplýsingar. Telur hv. þingmaður að það sé til staðar greiðsluvilji? Eða er lýsing hv. þingmanns á þessu hverfi sem hann var að lýsa að væri að fara í uppbyggingu nánast bílastæðalaust — er það einhvers konar tilraun til að neyða íbúana til að vera ekki á bíl?