samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Þetta er áhugavert svar í ljósi þess að jafnvel þó að ýtrustu eða hæstu spádómar um nýtingu almenningssamgangna sem lágu að baki þessu verkefni gengju eftir þá er áætlaður fjöldi ökutækja á sama áratímabili mun meiri en sem nemur aukningu í almenningssamgöngum, þannig að vandamálið verður ekki leyst með því, hvað þá með bílastæðalausum hverfum. Ég átta mig ekki alveg á því hvernig það á að leysa þetta og ekki er það heldur gert með því að reyna að rukka fólk bara þangað til það neyðist til að gera eitthvað annað, því að á einhverjum tímapunkti hlýtur meira að segja núverandi ríkisstjórn að gera sér grein fyrir því að skattlagning er orðin það há að jafnvel vinstri sinnaðir kjósendur neyðast til að kjósa til hægri, þeir hafa bara ekki efni á því lengur að styðja hugmyndafræðina. Það hlýtur að vera á hverjum tímapunkti. Þess vegna endurtek ég spurninguna sem ég lagði fram áðan sem hv. þingmaður annaðhvort hafði ekki tíma til að svara eða gleymdi. sem er um greiðsluviljann: Hvar er þessi skurðpunktur, hv. þingmaður? Hvenær er nóg nóg? Ég spyr vegna þess að það er hægt, vilji menn fara þessar leiðir og keyra á þessa hugmyndafræði með þetta innviðafélag — sem er alls ekki alslæm, það er bara framlagningin á henni, textinn í henni sem er ekki tilbúinn, það þarf bara að vinna þetta mál betur áður en það er tækt — að fella út á móti kílómetragjaldið. Þá kannski, og ég spyr hv. þingmann hvort hann sjái það fyrir sér, getur fólk hugsað sér að borga fyrir að aka ákveðna vegarkafla af því að það er búið að taka einhverja aðra skatta af í staðinn. En það er ekki bara hægt að bæta við, ég hygg að hv. þingmaður sé mér sammála um það að á einhverjum tímapunkti þá bara getur fólk ekki meir.