157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:25]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni aftur fyrir spurninguna. Það hefur enginn efni á því að kjósa til vinstri, þeir sem hafa neyðst til að hafa alvöru vinstri stjórnir af einhverjum ástæðum vita að það fer ekki vel. En þetta er allt rétt hjá hv. þingmanni með greiðsluviljann. Aðalatriðið er þetta: Við erum ekki að ræða þetta í heild sinni sem er nauðsynlegt að gera. Þú verður að hafa einhverja yfirsýn yfir þetta. Það þýðir ekki bara að taka allar mögulegar og ómögulegar leiðir til að skattleggja fólk og setja gjöld á fólk og bara skella því öllu saman. Það bara dugar ekki. En í ofanálag þá erum við ekki að ræða stærstu framkvæmdirnar, hvernig við ætlum að fjármagna þær og hvort þær dugi til þess að leysa vandann. Við erum ekki að því. Við erum aðeins farin að ræða hérna Fljótagöngin. Ég frétti þetta bara núna því að mér skilst að þeir sem eru að undirbúa innviðafélagið séu með allar upplýsingar um þetta, þ.e. þeir eru búnir að taka út þessar framkvæmdir, og miðað við þær upplýsingar sem ég hef þá telja þeir sig geta náð 15% af framkvæmda- og rekstrarkostnaðinum með veggjöldum. Þá eru 85% eftir og það eru 18,5 milljarðar. Hvar eru þeir peningar? Ég veit alveg að við getum ekki gert allt fyrir alla í samgöngumálum frekar en öðru, ég átta mig alveg á því. En af hverju eru menn að lofa að Fljótagöng fari af stað á næsta ári þegar það er ekki gert ráð fyrir neinum fjármunum í þau? Af hverju er það? Og af hverju eru menn að segja að innviðafélagið leysi allra handa vanda þegar frumvarpið um innviðafélagið er ekki tilbúið, við erum ekki búin að taka umræðu um það? Af hverju er enginn að ræða stóru framkvæmdirnar í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu (Forseti hringir.) og af hverju eru þær ekki í þingsályktunartillögunni?