samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og maður heyrir að þingmaðurinn brennur fyrir þessu efni og hefur löngum látið sig varða samgöngur í Reykjavík, sem er auðvitað sjálfsagt og eðlilegt enda hv. þingmaður fyrir Reykjavík og Reykvíkinga eins og sú sem hér stendur.
Mig langar að spyrja hv. þingmann, svona bæði til að auka leti mína og til þess að heyra hans afstöðu til málanna í þessu: Hvað er það í þessari samgönguáætlun sem hv. þingmaður telur jákvætt fyrir Reykjavík? Eru einhverjar einstakar framkvæmdir hér sem hv. þingmaður telur jákvætt að farið sé í og sem er borðleggjandi að farið verði í? Hvað er jákvætt fyrir Reykvíkinga? Ég hygg að hv. þingmaður sé annar tveggja þingmanna fyrir Reykjavík sem hafa tekið þátt í umræðu þessa máls. Ég er hér á mælendaskrá á eftir honum. Við höfum heyrt miklar ræður og margar um málefni landsbyggðarinnar og maður hefur auðvitað ákveðinn skilning á mörgum sjónarmiðum sem þar koma fram. En umræðan um Reykjavík, þar sem þorri fólks býr og umferðin er þyngst, hefur ekki farið hátt í salnum, nema kannski af hálfu landsbyggðarþingmanna sem hafa af því miklar áhyggjur að með þessari samgönguáætlun, sérstaklega og innviðafélagi sem við erum að fjalla um hérna samhliða, sogist bara allt fé til Reykjavíkur. Það yrði þá í fyrsta sinn í sögu vegagerðar á Íslandi sem það myndi gerast, við eigum eftir að sjá það gerast. En spurningin er bara: Hvað er jákvætt fyrir Reykjavík í þessari samgönguáætlun, ef það er eitthvað?