samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og ég þakka hv. þingmanni líka fyrir að hafa tekið eftir því að ég hef tekið upp samgöngumál Reykjavíkur hér, ég hef gert það frá því að ég varð þingmaður. Reyndar var það þannig, ég man það þegar ég var aðeins yngri og var kominn hérna fyrst inn, að þegar ég byrjaði að taka upp þessi mál þá var ég skammaður fyrir það blóðugum skömmum að taka upp samgöngumál Reykjavíkur á Alþingi Íslendinga. En nú erum við fleiri sem ræðum þetta.
Hv. þingmaður spyr hvað sé jákvætt í þessu fyrir Reykjavík. Það er minnst á Sundabraut og það eru settir ákveðnir fjármunir í Sundabraut en ég vil þá ræða Sundabraut því ég hef áhyggjur af því hvernig menn ætla að framkvæma það. Ég vek athygli á því og ítreka að Sundabraut ætti að vera löngu komin, þetta er forgangsmál, en eins og ég nefndi aðeins í minni ræðu þá eru menn að vinna með hugmyndir sem ég held að leysi ekki þann vanda sem Sundabraut á að leysa og taka að auki mið af stöðunni eins og hún var fyrir einhverjum áratugum síðan. Annað jákvætt er ekki mikið en svo erum við náttúrlega með samgöngusáttmálann. Ég er ekki að halda því fram að allt þar sé alveg hræðilegt, ég er ekki að segja það. Það er mjög gott þegar sveitarfélögin og ríkið ná saman um það hvernig eigi að gera hlutina. En það breytir því ekki að við hér berum ábyrgð á þessu og ég hef miklar áhyggjur af verkefnum sem þar eru og forgangsröðuninni, t.d. held ég að það sé útilokað annað en að byrja á Miklubrautarstokknum. Við þekkjum að Suðurlandsbrautin er náttúrlega bara einhver — þar er bara lestarslys á leiðinni, lestarslys. Sæbrautarstokkurinn hljómar ágætlega en þegar maður fer að skoða hann þá eykur hann ekkert umferðarrýmd en Sundabraut á að tengjast við hann og þetta gerir það að verkum að við erum ekki að leysa neinn vanda. (Forseti hringir.) Það eru framkvæmdir upp á tugmilljarða. (Forseti hringir.) Ég næ ekki að svara þessu betur á þessum tveim mínútum en ég vona að við getum fylgt þessu eftir.