samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður nefnir samgöngusáttmálann, sáttmála um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu sem hefur verið endurskoðaður. Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður geti útskýrt fyrir mér og fleirum hvers konar réttaráhrif þessi höfuðborgarsáttmáli hefur í samhengi við þessa samgönguáætlun. Þessi höfuðborgarsáttmáli hefur mér að vitandi aldrei komið til afgreiðslu hér á þinginu og hann hefur, held ég, aldrei komið til umræðu sérstaklega hér á þingi. Hér er vísað í þessu plaggi í sáttmála sem virðist taka stórfelldum breytingum frá einum tíma til annars, hefur verið einhvers konar lifandi skjal í skúffu fjármálaráðuneytisins og einhverra ohf.-félaga sem hafa verið stofnuð hvert á fætur öðru, félög sem hafa verið að stækka og stækka með vaxandi fjölda starfsmanna, félög sem virðast samt ekki hafa neinu hlutverki að gegna öðru en að ráða til sín starfsfólk. Hvaða þýðingu hefur þessi sáttmáli hér? Hvaða réttaráhrif hefur hann við afgreiðslu þessarar samgönguáætlunar? Þá er ég að hugsa sérstaklega um Reykjavík vegna þess að jú, inni í þessum sáttmála er hrúgað inn alls kyns verkefnum sem ég fæ ekki séð að séu fjármögnuð. Ég fæ heldur ekki séð eða get a.m.k. ekki tekið undir það að hann hafi fengið einhverja málefnalega umræðu frá kjörnum fulltrúum sem hafa kannski einhverja skoðun á því, m.a. sú sem hér stendur, aðra en hv. þingmaður, (Forseti hringir.) t.d. á gagnsemi Miklubrautarstokks eða Miklubrautarganga.