157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:35]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Í fyrsta lagi held ég að hann hafi aldrei verið til umræðu. Ég hef beðið eftir sérstakri umræðu um þessi mál frá byrjun þessa árs og vildi sérstaklega taka fyrir borgarstjórnarkosningarnar en það hefur ekki enn þá fengist og er ekki enn þá komið á dagskrá. En það á ekki að vera sérstök umræða um þetta, þetta ætti að vera á dagskrá þingsins. Rekstrarkostnaður Betri samgangna er kominn upp í nærri 500 millj. kr. á ári. Hvað varðar réttaráhrifin þá fór ég yfir það í minni ræðu að ég hef áhyggjur af því að þar sem þessi verkefni eru ekki tilgreind geti það verið í lausu lofti. Við höfum svo sem ekki rætt það. Ég fór yfir í minni ræðu fjármögnunina, að Keldnalandið á að skila 50 milljörðum. Það er í uppnámi. Það eiga að koma 143 milljarðar í gegnum veggjöld. Það er ekki búið að ræða það. Það er ekki búið að ganga frá nokkrum sköpuðum hlut og á meðan er það ekki að fara að koma.

Síðan vil ég gjarnan taka umræðu við hv. þingmann og aðra um einstök samgöngumannvirki. Hv. þingmaður segir að við séum ósammála um göng undir Miklubrautina. Það getur vel verið, það er allt í lagi. En við verðum að ræða það. Og ég get ekki séð hvernig menn geta farið í framkvæmdir við Suðurlandsbrautina án þess að það fari bara allt í steik í umferðarmálum. Ég get ekki séð annað en að ef menn ætla að fara í þessar stóru framkvæmdir þá verði menn að auka umferðarrýmdina vestur í borgina. Við náum ekki að ræða það í þessum stuttu andsvörum.

Ég horfi líka á borgarlínuna sem er eitthvað sem ég vil skilja. Miðað við þær áætlanir sem maður heyrir og þær upplýsingar sem maður hefur þá er þetta alls ekki að ganga upp. Það eru alls konar fletir á því. Ég horfi á kort af Grafarvogi þar sem á að setja borgarlínuna og ef menn ætla að framkvæma það (Forseti hringir.) þá gera þeir það ekki öðruvísi en að taka af akreinar sem núna eru undir almenna umferð. (Forseti hringir.) Ætlum við ekkert að ræða þetta, virðulegi forseti?