157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:17]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég held nú fyrstu ræðu mína um þessa miklu samgönguáætlun. Ég hef þó fylgst nokkuð náið með umræðunni fram að þessu og tel að hún hafi verið á margan hátt gagnleg þótt hún sé ekkert mjög langt komin. En þar hefur komið fram eitt og annað sem ég og raunar, held ég, megi segja að margir þingmenn hafi ekki verið meðvitaðir um varðandi ágallana og álitamál í þessari áætlun. Það er óhjákvæmilegt að líta til þess hvernig hún var kynnt til sögunnar; á blaðamannafundi, eins og tíðkast hjá þessari hæstv. ríkisstjórn, sem einkenndist meira af umbúðum og því að draga upp ákveðnar myndir og væntingar en innihaldi. Þegar farið var að skoða hvað myndi raunverulega gerast eftir allar yfirlýsingarnar um sögulega samgönguáætlun og stórkostlegar framfarir og innviðauppbyggingu þá kom á daginn að það myndi tiltölulega lítið gerast fyrstu árin, a.m.k. það sem eftir er af þessu kjörtímabili. Meginverkefnin, þau stærstu og millistóru, áttu að langmestu leyti að koma til í tíð seinni ríkisstjórna. En það var kynnt sem stórkostlegt framfaraskref að ólíkt öðrum samgönguáætlunum væri þessi fjármögnuð.

Sumir hváðu, enda hafði ríkisstjórnin ekki kynnt í fjármálaáætlun eða fjárlögum neinar stórkostlegar viðbætur í samgöngumálum, en það sem átt var við með fjármagnaðri samgönguáætlun, sem átti að heita algjör nýlunda, var að stofnað yrði fyrirtæki, innviðafélag, til að standa straum af kostnaði við þessar úrbætur allar. Hæstv. forsætisráðherra sagði þá, viljandi eða óviljandi, að þetta hefði m.a. þann kost að þá færi þetta ekki allt á reikning ríkisins, þetta yrði tekið til hliðar við ríkisreikninginn og hefði þannig jákvæð áhrif á ríkissjóð og mat á útgjöldum hans. Já, gott og vel. En það eru nú einhver takmörk fyrir því hversu langt er óhætt að ganga í þessum efnum. Varla viljum við fara alveg út í Enron-skipulag á þessu, en fyrir þá sem muna ekki eftir vandræðum þess bandaríska stórfyrirtækis snemma á þessari öld þá snerust þau að miklu leyti um það að kostnaður hjá þessu félagi hafði að miklu leyti verið falinn í hliðarfélögum eða dótturfélögum þess þannig að heildarmyndina vantaði. Þegar við erum að tala um íslenska ríkið þurfum við að hafa heildarmyndina yfir útgjöld og tekjur, eignir og skuldir.

Það kann að vera freistandi fyrir stjórnmálamenn á hverjum tíma að fela svona neikvæðari þættina, skuldirnar og einnig innheimtuna. Það sem ég myndi helst vilja gera athugasemd við varðandi þessi áform um þessa fjármögnuðu samgönguáætlun sem svo er kölluð, þó að hún sé það í rauninni ekki, er að með henni sjáum við áframhald þeirrar þróunar sem hefur ágerst á Íslandi núna í allmörg ár þar sem neytendur, almenningur í landinu, eru rukkaðir um ný gjöld hér og þar til hliðar við skattana, til hliðar við þau gjöld sem ríkið kynnir yfirleitt með hækkunum um hver áramót og til hliðar við tekjuskatt, virðisaukaskatt og aðra skatta sem fólk greiðir. Með því móti má kannski láta líta út fyrir að skattheimta ríkisins sé minni en ella. En fólkið í landinu, almenningur, er engu að síður að greiða meira og meira bara með nýjum og frumlegri leiðum til hliðar við hina hefðbundnu skattlagningu.

Ef of langt verður gengið í því efni í samgöngumálum þá leiðir það einfaldlega til þess að það sem við aðrar aðstæður, við hefðbundnar aðstæður eins og þær hafa verið fram að þessu, væri greitt með sköttum, hvort sem það er tekjuskatturinn eða hinir ýmsu skattar og gjöld sem lögð eru á samgöngur og bifreiðar, ekki hvað síst fólksbíla, fjölskyldubílinn, þá er verið að auka skattheimtu ríkisins bara með hjáleið. Væri þá kannski betur heima setið en af stað farið ef þessu er ætlað að fela fyrir almenningi þá innheimtu sem ríkisvaldið er að leggja á fólk. Þetta er sérstaklega viðkvæmt að mínu mati í samgöngumálum því við höfum séð það núna allmörg undanfarin ár að það er stöðugt verið að kynna nýjar álögur, nýja skatta, á þeim forsendum að það sé nauðsynlegt til að ráðast í átak til að rétta af innviðahallann, eins og það er kallað, til að bæta samgöngur í landinu sem hafa vissulega verið vanræktar.

Ég hef ekki tölu yfir þá skatta og þau gjöld sem hafa verið réttlætt með þessum hætti, ekki hvað síst í tíð þessarar ríkisstjórnar. Við þekkjum hin ýmsu gjöld sem lögð eru á bílaeigendur, eldsneytisgjöldin — þau eru ýmis og þau eru mörg — og kolefnisgjöldin. Svo voru vörugjöld hækkuð og það var réttlætt með því að þessi hækkuðu vörugjöld yrðu notuð til að bæta vegina, samgöngurnar. Svo eru veiðigjöld hækkuð, einhverjir kunna að muna eftir umræðu um þau hér, en þau voru réttlætt með því að það ætti að nýta gjöldin í að bæta samgöngur, einkum á þeim svæðum þar sem tekjurnar yrðu til. Kílómetragjöldin þekkja menn; enn ein leiðin til að skrapa saman fé frá almenningi til að ráðast loksins í samgöngubætur. Veggjöld ýmiss konar hafa verið nefnd. Keldnalandið, ein verðmætasta eign ríkisins, var selt eða lagt í félag til þess að hvað? Jú, til að nýta ágóðann í samgöngubætur svo loksins yrði hægt að ráðast í þær. Ég minnist þess að hér hafi verið talað um að selja Íslandsbanka og hugsanlega nýta ágóðann í samgöngubætur. Þetta var í tengslum við hinn undarlega og afleita samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Nýverið heyrði ég að bæjarstjórinn í Kópavogi væri farinn að velta því fyrir sér hvort ekki mætti selja Landsbankann og nýta afraksturinn í samgöngubætur, sem eru raunar ekki samgöngubætur, í borgarlínuna. Eins hafa verið nefnd innviðagjöld í Reykjavík o.s.frv., frú forseti.

Hversu oft á fólk að þurfa að borga fyrir það sama? Borga fyrir hlutinn sem fær ekki? Það er ekki einu sinni þannig að fólk hafi þurft að borga fyrir sama hlutinn oft, það fær ekki einu sinni þann hlut, sem í þessu tilviki eru samgöngubætur í samræmi við það sem lofað hefur verið. Svo er þessi áætlun kynnt og ólíkt öllum öðrum samgönguáætlunum, var okkur sagt, þá er þessi fjármögnuð með stofnun þessa svokallaða innviðafélags. Er það bara enn ein leiðin til að leggja ný gjöld og nýja skatta á almenning til að hægt sé að hvað? Ráðast í samgöngubætur? Ég hef a.m.k. séð hér í ræðum mjög margra hv. þingmanna, sérstaklega reyndar minni hlutans, ýmsar bollaleggingar, aðvaranir og útskýringar á þeim göllum sem þetta innviðafélag er háð. Ég ætti kannski frekar að segja: Bent hefur verið á ýmis ókláruð mál, óleyst mál, það sem kemur ekki fram með hvaða hætti þetta muni allt saman ganga upp; hvernig fjármögnunin fari fram á endanum. Þá óttast maður auðvitað að þetta nýja innviðafélag geti orðið eitthvað á borð við — hvað var það nú kallað, frú forseti, — Betri samgöngur, einhver kaldhæðinn maður fann upp það nafn við framkvæmd samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, að þetta gæti orðið eitthvað svipað, svona ríki í ríkinu.

Við höfum oft rætt hér um svokölluð opinber hlutafélög sem ég held að sé alveg óhætt að segja að hafi verið hugmynd sem mátti skoða var framkvæmd en hafi mistekist. Mörg þessara félaga hafa orðið svona, já, hálfgert ríki í ríkinu sem telja sig alls ekki háð lýðræðislegu valdi og stjórnmálunum, eru þó ekki með aðra eigendur en ríkið og vilja bara fara sínu fram, starfsmennirnir ráði þessu. Ég held að við þurfum ekkert að fjölga slíkum félögum og allra síst á sviði mikilvægra innviða því að þrátt fyrir að kjósendur, almenningur, hér á landi eins og víðar, hafi kannski takmarkaða trú á stjórnmálamönnum og þyki gaman að skammast yfir þeim þá er þó betra fyrir þessa sömu kjósendur að geta skammast yfir stjórnmálamönnunum og kosið þá í burtu en að sitja uppi með það að stjórnmálamennirnir vísi á að því miður hafi ekki verið hægt að leggja einhvern veg, brú eða gera göng af því að félag sem pólitíkin, Alþingi, hefur mjög takmarkað um að segja hafi ekki viljað það. Þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt að þingið skoði ofan í kjölinn hvert skuli stefnt með þessu félagi en það verður önnur, geri ég ráð fyrir, sérstök umræða um félagið og ég ætla fyrir vikið að láta það bíða að ræða það frekar að sinni en taldi mikilvægt að nefna þetta hérna í fyrstu ræðu minni um samgönguáætlun vegna þess að hún byggir að miklu leyti á þessari hugmynd, þessari óútfærðu og að mörgu leyti óútskýrðu hugmynd.

En þá að verkefnunum sem hér eru undir. Í þessari ágætu umræðu hefur töluvert verið rætt um einstaka landshluta og einstök verkefni og þar með talið í mínu kjördæmi, Norðausturkjördæmi. Hv. þingmenn, eins og hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson og raunar fleiri þingmenn Norðausturkjördæmis, hafa komið upp og dregið fram með mjög skýrum og skilmerkilegum hætti hversu illa er í raun farið með Norðausturkjördæmi í þessari áætlun. Ég veit að önnur kjördæmi segja farir sínar ekki sléttar heldur. Ég sýni því auðvitað fullan skilning og mun í næstu ræðum mínum um þessa áætlun fjalla um tiltekin svæði og jafnvel tiltekin verkefni.

En í fyrstu ræðunni ætlaði ég þó að einbeita mér að heildarmyndinni. Ég var búin að afgreiða þetta að einhverju leyti varðandi fjármögnunina eða skort á fjármögnun og sný mér þá að öðru sem skortir kannski aðeins á að sé nægilega vel útskýrt, eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson hefur meðal annarra dregið ágætlega fram. Það er fyrrnefndur samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins og þar með talið hin alræmda borgarlína. Það er auðvitað vikið að þessu og sá samgöngusáttmáli, eins og menn kjósa að kalla hann, er hér undir en það virðist vera að í þessum, hvað 110 síðan hafi menn forðast að fara of djúpt í þau mál, sem er sérkennilegt í ljósi þess hversu stór hluti af heildinni þetta er, og þá borgarlínan alveg sérstaklega sem er enn þá ófjármögnuð og gert er ráð fyrir að ríkið beri sívaxandi kostnað af þótt þau mál hafi ekki enn verið leidd til lykta.

Í samgönguáætluninni segir um þessi mál undir liðnum um markmið um greiðar samgöngur, liður tvö, með leyfi forseta, a-liður, fyrsti liðurinn:

„Unnið verði að áframhaldandi uppbyggingu hágæðaalmenningssamgangna, borgarlínu og annarra samgöngumannvirkja á grundvelli samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.“

Hér er í samgönguáætlun vísað í að unnið skuli á grundvelli samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Svo segir í b-lið: „Leitast verði við að jafna vægi ferðamáta í þéttbýli með það að markmiði að stuðla að breyttum ferðavenjum.“

Hér er það sagt hreint út að markmiðið með samgöngusáttmálanum og fyrir vikið samgönguáætlun þessarar ríkisstjórnar sé neyslustýring; að hlutast til um það að fólk ferðist á þann máta sem ríkið telur æskilegt fremur en þann máta sem menn velja sér hver fyrir sig. En fyrir þetta þarf að borga og það mikið. Enginn veit hversu mikið af því að það hefur ekki verið reiknað þrátt fyrir að verkefnið sé farið af stað og búið að ráða mikinn fjölda starfsmanna. Ég lít nú reglulega inn á síðu borgarlínuverkefnisins Betri samgangna, eða hvað þetta er kallað núna. Þar fjölgar jafnt og þétt fólki í hinum ýmsu störfum, ýmist tæknilegum störfum eða störfum við það að kynna fyrir almenningi hversu frábært þetta sé allt saman. Það eru nokkrir í því á launum frá skattgreiðendum að segja skattgreiðendum að þetta sé allt hið besta mál. Þar fyrir utan er fjöldi verkfræðinga, verkfræðistofa jafnvel, að vinna að verkefninu, þ.e. hagsmunir eru þegar orðnir miklir fyrir vexti, viðgangi og framhaldi þessa verkefnis sem enn er ekki vitað hvað muni kosta og enn er ekki vitað hvernig verði fjármagnað hvað reksturinn varðar.

Þetta er atriði sem var mikið rætt hér í þinginu þegar, af óskiljanlegum ástæðum, ríkisstjórn Vinstri grænna, í þessu máli undir forystu Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, tók að sér að fjármagna óútfært delluverkefni Samfylkingarinnar í Reykjavík; koma því af stað að afhenda Keldnalandið, velta fyrir sér hvort ekki mætti henda Íslandsbanka í þetta líka o.s.frv., til að koma þessu af stað, en enn hefur því ekki verið svarað hver muni bera rekstrarkostnaðinn. Hver mun standa undir þeim eilífðarútgjöldum sem munu fylgja rekstrarkostnaði þessarar óhagkvæmu borgarlínu? Því að það gerir enginn ráð fyrir að hún verði hagkvæm, að hún skili ávinningi. Nú þegar eru skattgreiðendur að greiða u.þ.b. tvo þriðju hluta af verði hvers strætómiða og enginn væntir þess að miklu stærra og dýrara verkefni en strætó muni skila arði. En hver á að bera rekstrarkostnað? Það er ekki vitað. Það þurfti nú reyndar inngrip frá hv. þingmönnum Miðflokksins á sínum tíma til að það væri þó nefnt í greinargerð málsins, nefndaráliti, að með því að samþykkja þetta mál á sínum tíma væri þingið ekki að fallast á að taka að sér fyrir hönd ríkisins greiðslu rekstrarkostnaðar. (Forseti hringir.)

Frú forseti. Nú er ég rétt að komast af stað í fyrsta undirkafla fyrsta kafla og bið því um að verða settur aftur á mælendaskrá.