samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna þar sem hann fór m.a. yfir gjaldtökugleði hæstv. ríkisstjórnar sem er einmitt gjarnan réttlætt með því að von sé á betri þjónustu, ef gjaldtakan er þá réttlætt yfirhöfuð. Það virðast engin takmörk vera sett fyrir skattpíningu þessarar skattpíndustu þjóðar heims.
Í þessari áætlun sem er til umræðu hér er farið yfir að framkvæmd samgöngusáttmálans umdeilda, sem hv. þingmaður kom aðeins inn á, verði fjármögnuð að hluta með innheimtu veggjalda. Ég er því með tvíþætta spurningu til hv. þingmanns. Í fyrsta lagi: Hvert er viðhorf hv. þingmanns til þessara fyrirætlana og hver er þá sýn hans ef hún er önnur en sú sem er stöfuð út í þessari áætlun? Hvert er viðhorf hv. þingmanns til þess sem segir í áætluninni, að áhersla verði lögð á, með leyfi forseta: „að tekjuöflun leggist með sanngjörnum hætti á alla landsmenn“?