157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:39]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ef ég byrja á seinni hlutanum. Þessi áform um að tekjuöflun, þ.e. skattar og gjaldheimta, leggist með sanngjörnum hætti á alla landsmenn er náttúrlega enn eitt dæmið um þá ímyndar- og umbúðapólitík sem einkennir þessa ríkisstjórn ekki hvað síst. Þarna er auðvitað átt við að það sé að mati nútíma vinstri mannsins sanngjarnt að allir borgi fyrir áform um að neyða sem flesta í almenningssamgöngur og til þess er leikurinn gerður. Ég er ekkert að segja þetta í neinni kerskni. Það kemur fram í forsendum þessarar borgarlínu að ef þetta eigi að ganga og einhverjir eigi að nota þetta þá séu þeir að þrengja að annarri umferð. Og víkur þá sögunni einmitt að því sem ég nefndi hérna áðan um neyslustýringuna. Gallinn við neyslustýringu er ekki aðeins sá að hún felur í sér tilraunir yfirvalda til að stjórna daglegu lífi fólks heldur líka það að yfirvöld vilja pening til að geta í auknum mæli og með betri hætti og auknum hætti stjórnað daglegu lífi fólks. Þess vegna veldur þetta mér talsverðum áhyggjum, borgarlínumálið ekki hvað síst, en líka bara framsetningin á þessari samgönguáætlun sem einkennist svo af þessari umbúðamennsku sem einkennir ríkisstjórnina. Hún einkennist af algerri óvissu um fjármögnun nema að því leyti, sem þó er viðurkennt með orðskrúði, að almenningur eigi auðvitað að borga allt á endanum. En það er reynt að fela það með orðalaginu.