157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:42]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og tek undir að það virðist vera augljóst markmið hreinlega að neyða sem flesta í almenningssamgöngur. Þegar maður segir neyða þá virðist það vera augljóst þegar reynt er að þrengja að umferð með þeim hætti að það verði einhvern veginn eini valkosturinn, ekki að nota almenningssamgöngur, af því að þær eru í miklum lamasessi, heldur bara að vera fótgangandi, virðist vera, eða á hestbaki. Sama fólk og hefur stýrt Reykjavíkurborg og talar fyrir þessari stefnu hefur síðan gert fólki það ókleift að nota almenningssamgöngur með skipulagsslysum.

Hv. þingmaður kom inn á hin ýmsu félög og ætlar að geyma umræðu um innviðafélög fyrir sérstaka umræðu þar um, en hann nefndi annað félag sem er félagið Betri samgöngur. Ég heyrði að hv. þingmaður er ekki hrifinn af þeirri nafnleysu. Hann fór m.a. yfir það hvernig þetta ríki í ríkinu hefur blásið út. Við sáum það í kringum nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar að það var byrjað að auglýsa eða bjóða út gerð stoppistöðva, heyrðist mér, (Forseti hringir.) þrátt fyrir að eitt stærsta málefnið sem tekist var á um fyrir sveitarstjórnarkosningarnar væri endurskoðun þessarar framkvæmdar. En hvernig komum við, virðulegi forseti, böndum á þetta verkefni og þetta félag? Er það hægt?