samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil þakka alveg sérstaklega fyrir þessa spurningu því að þetta er spurning sem ég velti fyrir mér á hverjum degi: Hvað er hægt að gera? Hvernig er hægt að koma böndum á þetta fyrirbæri? Það ber öll merki svona kerfiseininga, kerfisfélaga, sem öðlast sjálfstætt líf og halda áfram á sinni braut, sinni línu, í þessu tilviki borgarlínu, sama hvað almenningi finnst, sama hvað stjórnmálamönnunum finnst. Þetta er bara farið af stað og heldur áfram á sinni braut. Ég tel óásættanlegt fyrir okkur stjórnmálamenn að leyfa slíku að viðgangast og það á við á mörgum sviðum. Við þurfum að fara að grípa inn í í þessu sjálfala kerfi á mörgum sviðum. En sérstaklega í þessu tilviki þá held ég að tíminn sé núna til að bregðast við þessu. Við erum að ræða samgönguáætlun. Við erum að ræða þetta svokallaða innviðafélag, (Forseti hringir.) sem er veruleg hætta á að verði einhvers konar móðurfélag fyrir — ég held áfram á eftir, frú forseti.