samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu og margt áhugavert sem þar kom fram. Svona til upplýsingar þá er í minnihlutaáliti fjárlaganefndar vegna innviðafélags sem við erum ekki enn þá búin að ræða tafla yfir rekstrarkostnaðinn við Betri samgöngur. Hann var 136 milljónir árið 2021, er núna kominn upp í 437 milljónir og árið 2030 verður hann kominn upp í 493 millj. kr. á ári, rekstrarkostnaður félags sem enginn ber ábyrgð á, enginn stýrir og engin umræða er um. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að hafa tekið eftir því að ég hef aðeins tekið það upp í máli mínu, ekki bara núna í tengslum við þessa samgönguáætlun heldur frá því að við hófum þetta kjörtímabil, vegna þess að ég hef af því gríðarlega miklar áhyggjur af því að við erum með stærsta einstaka hluta af samgönguframkvæmdum í samgönguáætlun í greinargerð á bls. 102. Ég spyr hv. þingmann hvort hann deili áhyggjum mínum af því t.d. að bara með því að tilgreina ekki verkefnið, því að sum verkefnin eru alveg prýðileg og ég er ekki að segja að þetta sé allt saman alveg hræðilegt, ef við tilgreinum þetta ekki í samgönguáætlun, er þá heimild til að fara í þessi verkefni? Það getur ekki verið hægt að vísa bara til greinargerðar, stutts texta, á bls. 102 þegar við erum að tala um tugmilljarða verkefni — eða hvað? Hver er skoðun hv. þingmanns á því?