samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Já, ég hef fylgst með umræðu hv. þingmanns um þetta mál og ég tek undir rök hans. Ég tel það a.m.k. verulegum vafa undirorpið að þessi heimild sé til staðar. Því miður er slík óvissa ekki alveg ný af nálinni því það hefur ágerst, hefur mér fundist, að veittar séu svona almennar heimildir, jafnvel viljayfirlýsingar, og ráðist í útgjöld í krafti þess sem einfaldlega stenst ekki lög og jafnvel ekki stjórnarskrá. Stundum upplifir maður þingið dálítið eins og afgreiðslustofnun þegar hv. þingmenn meiri hlutans mæta hér og greiða atkvæði með eða á móti frumvörpum, jafnvel sér þvert um geð, og maður fer að velta fyrir sér: Hvert er hlutverkið fyrir þetta þing? En ef Alþingi, löggjafinn, á að hafa eitthvert hlutverk þá verður það að vera það að standa utan um útgjöld, hvernig farið er með peninga almennings. Í því felast auðvitað heilmikil völd þótt þingið eða meiri hlutinn fylgi jafnan leiðsögn, skulum við segja, fjármálaráðherrans. En ef menn ákveða einfaldlega að yfirgefa hið formlega, þ.e. að Alþingi verði að stimpla útgjöld, verði að samþykkja þau í hvert skipti og útvista jafnvel því valdi á grundvelli einhverrar viljayfirlýsingar, hvert erum við þá komin? Hver er þá staða Alþingis? Með öðrum orðum, frú forseti: Ég tel að þetta mál varði á mjög afgerandi hátt stöðu þingsins og hvort það hafi vilja til að verja sína stöðu í lýðveldinu.