samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Við erum bara sammála í þessu máli og það er ekkert meira um það mál að segja að sinni. Ég ætla að fara í annað sem snýr kannski meira að hans kjördæmi því að hér hefur því verið haldið fram hvað eftir annað að þessi samgönguáætlun sé fullfjármögnuð. Hún er það augljóslega ekki þegar kemur að Betri samgöngum og við höfum svo sem rætt það. En jarðgöng eru eitthvað sem fólk bíður eftir og það er búið að lofa því, held ég að ég fari rétt með, að Fljótagöngin byrji bara á næsta ári, sem tengja sama kjördæmi ef ég hef ekki rangt fyrir mér. Það eru engir fjármunir í þetta. Það eru engir fjármunir og innviðafélagið getur ekki búið til peninga úr engu. Miðað við þær upplýsingar sem við höfum bestar þarf ríkið að koma með 18,5 milljarða í Fljótagöng og það eru engir peningar til. Ég spyr: Veit hv. þingmaður hvar þessir peningar eru? Það er búið að lofa þessu. Hefur hv. þingmaður séð þetta einhvers staðar í samgönguáætlun eða fjármálaáætlun?