157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:51]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég sé ástæðu til að þakka borgarbarninu, eða ég ætti að segja Borgarnesbarninu, hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni, fyrir þessa spurningu og fyrir að huga að hagsmunum Norðaustur- og Norðvesturkjördæmis þrátt fyrir auðvitað áherslu sína á annað svæði og hlutverk í því efni. Ég hef leitað að þessu fjármagni alveg frá því að ég horfði á kynninguna, blaðamannafundinn sem ég nefndi áðan, í beinni útsendingu þar sem því var haldið fram og fullyrt að þetta væri stórkostleg áætlun af því að það væri svo mikið að fara að gerast hið fyrsta og það væri allt, ólíkt því sem áður var, fjármagnað. Svo að fundinum loknum fór maður að leita í gögnunum og reyna að átta sig á því hvernig þetta raunverulega væri, hvenær þetta færi af stað, hvernig þetta myndi gerast og hvernig það yrði fjármagnað. Þá var engin svör að finna því að þetta var bara kynnt í, ímynda ég mér, þeirri trú að fólk léti sér nægja að sjá glærurnar og ráðherrana, hvað voru þeir, þrír eða fjórir saman komnir (Forseti hringir.) til að kynna þetta, og myndi ekki kafa dýpra. Þannig að enn, eftir allan þennan tíma, frú forseti, og við erum að ræða málið hérna á Alþingi, þá liggur ekkert fyrir hvernig á að gera þetta.