157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:53]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína. Hv. þingmanni verður tíðrætt um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Það er vel skiljanlegt því að þetta er stórmál sem hefur ýmsa anga. Í samgöngusáttmálanum er endurskoðunarákvæði þar sem kveðið er á um að aðilar geti tekið samninginn upp ef forsendur hafa brostið og eru tilgreind ýmis atriði sem geta valdið því að forsendur bresti. Í mínum huga er þar allt undir — fjármögnun, hvernig tekist hefur til með ákveðna þætti verkefnisins og þar fram eftir götunum, en líka tæknin, hlýtur að vera. Þetta er langtímaverkefni og við þurfum að vera vel vakandi fyrir öllu sem er að gerast.

Nú veit ég að hv. þingmaður fylgist vel með því sem er að gerast alls staðar í kringum okkur. Mig langaði að fá álit hans á sjálfakandi bifreiðum. Sú sem hér stendur hefur sérstaklega mikinn áhuga á þeim. Það er styttra í tilkomu þeirra hér á landi en við flest gerum okkur grein fyrir. Það er byrjað að nota þessa bíla og þróa þá víðs vegar, sérstaklega í Ameríku en líka í Evrópu, og þeir hafa reynst öruggari en aðrir bílar. Hvað finnst hv. þingmanni um þessa tækni? Heldur hann að þessi tækni og þessi tegund ferðamáta og ökutækja geti haft áhrif á framgang títtnefnds samgöngusáttmála? Eigum við að líta til þessarar tækni í áframhaldandi vegferð samgöngusáttmálans?