samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka fyrir afar áhugaverða spurningu. Ég hef mikið velt þessu fyrir mér og það hafa fleiri gert. Ég vil nefna sérstaklega Eyþór Arnalds, fyrrverandi oddvita sjálfstæðismanna í borgarstjórn í Reykjavík, sem hefur leitast við að vekja athygli á því að borgarlínan sé í rauninni 19. aldar hugmynd og taki ekki mið af þeim öru tæknibreytingum sem eiga sér stað. Það virðist reyndar orðin venja í þessu kerfisræði að líta jafnvel fram hjá fyrirsjáanlegum tæknibreytingum og þeim sem þegar eru til staðar. Ég nefni í því samhengi ljósastýringu sem hefur verið rætt um árum saman án þess að hún hafi tekist eða verið reynt sem skyldi að koma því í lag.
Varðandi sjálfkeyrandi bíla tel ég óhjákvæmilegt að þeir verði farnir að ferðast hér um götur innan ekki svo langs tíma. Fyrst hafði maður efasemdir en svo sá maður myndband af þessu og þetta raunverulega virkaði. Maður var furðu lostinn. Nú er þetta komið á það stig að það eru borgir í Bandaríkjunum þar sem þetta er leyft og bílarnir byrjaðir að ferðast um. Það er óhjákvæmilegt að þeir komi til Reykjavíkur. Við sjáum oft að einhverjar tækniframfarir byrja gjarnan í Bandaríkjunum. Þá sjá menn í hvað stefnir hér og geta fyrir vikið ef vilji er til staðar reynt að gera ráðstafanir til að búa sig undir þá framtíð. Það er erfitt að spá um framtíðina eins og menn þekkja. En þegar við erum með sýnidæmi um í hvað stefnir er það bara vanræksla að búa sig ekki undir það. Hér erum við að fara í þveröfuga átt með borgarlínunni með rándýru og óhagkvæmu kerfi sem tekur ekki mið af þeim breytingum sem munu eiga sér stað á allra næstu árum.