samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Eins og ég sagði áðan er það ekki bara í borgum í Bandaríkjunum heldur eru tilraunir hafnar í Noregi, Þýskalandi, Bretlandi og víðar í Evrópu. Þetta er handan við hornið, bæði til einkanota og í bifreiðum sem tilheyra svokölluðum almenningssamgöngum. Þetta er ekki bara handan við hornið heldur er þetta að koma.
Ég er ánægð að heyra að hv. þingmaður sé þeirrar skoðunar að við þurfum að taka þetta til greina í öllum plönum fram undan. Ég vænti þess að hv. þingmaður sé þeirrar skoðunar að þetta geti haft veruleg áhrif á hvort fjölskyldur hafi einn eða tvo bíla heima við, sem hefur áhrif á gatnakerfið og þar fram eftir götunum. Ég hef í hyggju að leggja fram þingsályktunartillögu um að við búum okkur undir það að geta gert þessar tilraunir hér. (Forseti hringir.) Mig langaði að fá fram viðhorf hv. þingmanns til þess hvort hann myndi styðja tillögu um að löggjafinn færi að undirbúa þetta.