samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég hef ekki séð tillögu hv. þingmanns en held að mér sé alveg óhætt að segja að ég muni styðja hana og jafnvel að nota tækifærið og biðja um að fá að vera meðflutningsmaður ef það er í boði. Hv. þingmaður kemur oft með mjög góðar athugasemdir og tillögur. Ég efast ekki um að á þessu sviði sé hv. þingmaður með allt á hreinu.
Ég held að það sé orðið mjög tímabært fyrir okkur sem samfélag, en ekki hvað síst fyrir höfuðborgina, að huga að þessu og búa sig undir þessa þróun. Það er ekki alltaf sem maður getur séð framtíðina fyrir. Við getum rétt ímyndað okkur þegar þetta verður komið til framkvæmda hvort fólk muni frekar vilja ganga langa leið í strætó, bíða eftir honum þar og taka hann á næstu borgarlínustoppistöð — því að það á að vera tvöfalt kerfi, frú forseti, samkvæmt þessum borgarlínuhugmyndum — og taka þaðan risastrætóinn, borgarlínuna, annaðhvort á áfangastað eða á aðra strætóstöð og taka þaðan strætó. Eða fara í snjallsímann sinn og panta bíl sem kemur keyrandi sjálfur og skilar þér beint á áfangastað.
Það þarf ekkert að velta því lengi fyrir sér hvor er vænlegri valkostur og líklegri til árangurs. Þá ættu ríkisvaldið og sveitarfélögin auðvitað að velta því fyrir sér hvort vænlegra er til árangurs fyrir sig að einblína á rekstur stórra vagna og enn stærri vagna með þessari borgarlínu — þar sem eru kannski sitjandi einn eða tveir að ferðast ekki á þann stað sem þá langar að fara heldur eitthvað í grennd við hann — eða að búa sig undir tæknibyltinguna eins og hv. þingmaður leggur til. (Forseti hringir.)