157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:13]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Mig langar að drepa niður fæti í þeirri áhugaverðu umræðu, sem var hér áðan um tækniþróun, sem er að verða í umferðartækjum og bílum. Ég man eftir því þegar ég sat í stól samgönguráðherra árið 2017 að ég fór á ráðstefnu í Sviss og keyrði um ákveðinn borgarhluta í sjálfkeyrandi strætó. Manni þótti þetta alveg magnað. Það hefur mikið gerst á þessum tíma í þessari tækni. Hún hefur þróast og birtist okkur almennt í nýjum bifreiðum sem eru almenningstæki, almenningseign, og í öllu þessu sjálfvirka kerfi sem grípur inn í ef eitthvað gerist og forðar tjóni og slysum á hverjum einasta degi í umferðinni.

Öryggi hefur aukist gríðarlega mikið og þróunin er mjög hröð. Það er mikið viðfangsefni að reyna að gera sér grein fyrir því hvaða áhrif þessi tækniþróun, og deilibílar, muni hafa á okkur og umferðina á komandi árum. Ég held að það sé alveg fyrirsjáanlegt, og það er spá allra sem kynna sér þetta og þekkja vel til í þessu, að þetta muni hafa þau áhrif að bílum sem eign almennings muni fækka því að fólk mun nýta þessa þætti miklu meira.

Mér er minnisstæð mynd sem ég notaði fyrir nokkrum árum þegar ég fór víða um land til kynningar á samgöngumálum. Hún var frá aldamótunum 1900 í New York. Á henni sáust mjög þétt gatnamót — það var eiginlega umferðaröngþveiti á þessum gatnamótum í New York þarna árið 1900. Þarna voru hestvagnar. Fyrir neðan þessa mynd var spurt hvort maður gæti greint bílinn sem var innan um hestvagnana á myndinni. Þegar grannt var skoðað blasti við gamli Ford innan um alla hestvagnana. Á þeim tíma var áhyggjuefni í New York að þrífa hestaskít af götunum, svo að því sé bætt við.

Af sömu gatnamótum var síðan önnur mynd frá 1910, tíu árum síðar, og þau voru jafn þéttsetin. Þar var algjört umferðaröngþveiti. Þá var spurningin þessi: Geturðu greint hestvagnana á myndinni? Á tíu ára tímabili gjörbreyttist þetta, sem engir eða fáir sáu fyrir þá, að umferðin fór úr hestvögnum yfir í bifreiðar.

Ég held að við séum á þessum tímamótum nú. Það er ábyrgðarhluti þegar við erum að skoða svo viðamiklar fjárfestingar sem raun ber vitni í samgöngumannvirkjum, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, að þetta skuli ekki tekið með og ekki rýnt í þetta þegar um svo stórkostlegar fjárfestingar er að ræða.

Virðulegi forseti. Við höfum séð þetta gerast miklu víðar. Af því að við erum að ræða samgöngumál er hægt að nefna þróun sem er að verða í rafmagnsflugvélum. Það eru ekki nema örfá ár í það að hingað verði komnar 19 og jafnvel 32 sæta vélar, fyrir 19 farþega og 32 farþega, sem geta flogið á rafmagni á flugleiðum sem nemur Grænlandi, Færeyjum og öllu innanlandsflugi á Íslandi. Þetta er bara handan við hornið. Það er meira að segja hafin þjónusta með póstflutninga í Noregi og víðar á rafmagnsflugvélum eingöngu. Áhrifin verða þau, að mínu mati og margra annarra, að þetta verða strætóar almenningssamgangna á landsbyggðinni í framtíðinni.

Flugið verður svo miklu ódýrara með þessum vélum. Það kemur fyrst og fremst fram í miklu minna viðhaldi og eldsneytiskostnaði. Þarna munu vakna aftur þekktar flugleiðir frá því fyrir kannski 25–30 árum sem voru vestur á Snæfellsnes, á Blönduós, á Sauðárkrók og þessa staði. (Forseti hringir.) Þarna munu strætóarnir ganga. Fólk kemur í bæinn með morgunstrætó. Það sinnir sínum ferðum á deilibílum eða sjálfkeyrandi bílum og er aftur komið heim til sín í kvöldmat. (Forseti hringir.) Þetta er auðvitað þróun, virðulegi forseti, sem við verðum að líta til þegar við horfum á samgöngur framtíðarinnar.