157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:18]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég ætla hér að halda áfram hringferð minni gagnvart vegahluta samgönguáætlunar. Ég var kominn á Norðurland vestra og ætla aðeins að fara yfir á Norðurland eystra, svo við horfum til gömlu kjördæmanna. Eins og þeir þekkja sem lesa samgönguáætlun í þaula þá er svæðaskipting Vegagerðarinnar ekki alveg í samræmi við kjördæmaskipaskiptinguna. En það er vandalaust þó að það geti gert snúinn samanburðinn á fjárveitingum til kjördæma eins og þau eru nú um stundir. Það má segja að það verði grundvallarbreyting á Norðausturkjördæminu vegna þeirrar ákvörðunar hæstv. samgönguráðherra að færa fyrstu jarðgöng á núverandi jarðgangaáætlun í Fljótin, Fljótagöng, í stað þess að þau væru fyrir austan eins og ráð hefur verið gert fyrir í, ef ég man rétt, undangengnum tveimur samþykktum samgönguáætlunum. Skjálfandafljótið er hérna inni á fyrsta áætlunartímabilinu á þessum framkvæmdahluta áætlunarinnar og Brekknaheiði. En síðan er þetta, eins og með aðra þætti, afturþungt, eins og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson hefur komið inn á hér í ræðu fyrr í umræðunni. Af þessum uppsöfnuðu 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11, 12 milljörðum á fyrsta áætlunartímabili eru heildarupphæðirnar á öðru og þriðja áætlunartímabili heldur þyngri, ef svo má segja. Þannig að á þriðja áætlunartímabilinu, sem eru minnispunktarnir eins og ég hef stundum kallað það, þar er Þelamörk – Akureyri í heild sinni. Þar er helmingurinn af Jökulsá á Fjöllum þannig að það má reikna með að þar sé ekki áætlað að fara af stað fyrr en kannski 2034–2035 ef vel verkast. Og síðan, eins og ég kom inn á fyrr í þessari ræðu, þá bjagast mynd þessa svæðis með þeirri gríðarlegu breytingu sem verður vegna þess að Fljótagöngin eru komin þarna inn frá því sem áður var. Auðvitað ann maður öllum þess sem fá jarðgöng inn á sitt svæði og óskar þeim til hamingju. En tilhneigingin hefur verið sú í gegnum tíðina að þegar jarðgöng hafa komið inn á tiltekin svæði og tengdar vegabætur þá hefur það tosað til sín að hluta til réttlætingu fyrir ýmsum öðrum samgönguframkvæmdum á því tiltekna svæði. Þetta þekkir Vesturlandið vel frá fyrri tíð og fleira slíkt mætti nefna.

Mér sýnist af þeim svæðum sem ég er búinn að fara yfir; Vesturlandið, Vestfirðir, Strandir og Norðurland vestra, að Norðurland eystra megi nú sennilega hvað best við una af þeim svæðum, þó að þetta sé að nokkru marki afturhlaðið. En það er aftur þarna það sama og er á Norðurlandi vestra, hinu gamla, að það er töluvert magn tengivega sem þarna eru, malarvegir, og það er verkefni sem tekur óratíma að vinna á. Ef Vegagerðin tekur ákvörðun um að líta til þeirra sjónarmiða sem uppi voru við framlagningu síðustu samgönguáætlunar, að lempa þau svæði sem verst fóru út úr þeirri áætlun, og gera það í rauninni enn, gamla Vesturland og gamla Norðurland vestra, með auknum þunga fjárveitinga úr tengivegasjóði, sem ég held að ætti að horfa til til að lempa þetta ójafnvægi sem skapast — þá er hætt við að eitthvað dragi úr hvað varðar tengivegaframkvæmdir á þessu gamla svæði Norðurlands eystra sem fellur undir norðursvæði Vegagerðarinnar eins og regluverkið er núna stillt af. — Ég ætla að halda áfram, fer í Austurlandið í næstu ræðu og vil biðja frú forseta að setja mig aftur á mælendaskrá. Hringurinn er rúmlega hálfnaður.