samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég ætla fyrst að ræða stöðu Herjólfs. Ég hef rætt um Landeyjahöfn og ýmislegt annað hvað varðar Vestmannaeyjar en nú ætla ég að koma inn á Herjólf og afleysingaferju í Vestmannaeyjum.
Staðan er sú að siglingar Herjólfs á sumrin eru sjö eða átta á sólarhring þegar allt gengur vel en ekki er siglt á nóttunni. Skipið annar ekki eftirspurn eftir ferðum, sérstaklega ekki með bifreiðar. Yfirleitt er fullbókað í skipið í nánast flestar ferðir, sérstaklega kringum helgar, þannig að íbúar í Vestmannaeyjum komast oft ekki upp á land um helgar vegna þess að skipið er fullbókað í allar ferðir. Það fólk getur pantað ferðir og hefur stundað það að panta þær langt fram í tímann. Þá á það inni pantaðar ferðir og teppir þannig skipið. Síðan er fólk á biðlistum og hefur ekki hugmynd um hvort það kemst. Það bíður á bryggjunni, er kannski nr. 10 eða 12 á biðlista, og veit raunverulega ekki hvort það kemst eða ekki. Síðan er oft raunin að fólk kemst með vegna þess að mjög margir stunda það að panta far með skipinu til öryggis. Skipið er samt sem áður yfirleitt alltaf fullt á sumrin, sérstaklega um helgar. Farþegafjöldinn hefur aukist gífurlega á síðustu árum, eins og menn hafa farið yfir í umræðu um samgönguáætlun, fyrst með tilkomu Landeyjahafnar og síðan með tilkomu þessa nýja skips. En ekki hefur verið nægt framboð á ferðum.
Frú forseti. Ég tel einsætt að þörf sé á að smíðuð verði ný ferja sem gangi á móti Herjólfi yfir sumartímann, kannski fjóra eða fimm mánuði á ári, og sigli fram og til baka. Þá er hægt að bjóða upp á miklu fleiri ferðir til að anna eftirspurn, kannski allt að 12–14 ferðir á sólarhring. Það er full þörf fyrir slíkt skip hálft árið. Hinn hluta ársins getur þetta skip þjónað sem varaskip fyrir Herjólf ef upp koma bilanir eða slíkt og ef siglt er til Þorlákshafnar. Þá getur þetta skip einnig siglt til Þorlákshafnar og boðið upp á fjórar ferðir á sólarhring í staðinn fyrir tvær ferðir nú, sem er auðvitað alls ekki nægjanlegt. Skipið myndi leysa stóran vanda á veturna þegar Landeyjahöfn lokast. Einnig myndi skipið, sem er ekki síður mikilvægt, koma í veg fyrir að ferjan Baldur sé reglulega tekin hernámi af íbúum við Breiðafjörð.
Innlegg mitt í umræðuna nú er að ég tel að kominn sé tími til þess að smíðuð verði ný ferja sem sigli á móti Herjólfi IV til Vestmannaeyja og þjóni sem varaskip. Hún komi líka í veg fyrir að Baldur sé tekinn af íbúum við Breiðafjörð.
Frú forseti. Að þessu loknu ætla ég líka að tala um mislæg gatnamót. Ég vil benda á að það er einkennilegt, óskiljanlegt í raun og veru, þegar maður horfir á Reykjanesbraut annars vegar og Suðurlandsveg hins vegar, vegi sem hafa verið í uppbyggingu undanfarin ár, Reykjanesbraut sem hefur verið tvöfölduð, og lagður 2+1 vegur á Selfossi að mestu leyti, þó að honum sé ekki alveg lokið — það er mikill munur á þessum tveimur vegum. Á leiðinni frá Hafnarfirði til Fitja í Reykjanesbæ eru a.m.k. 11 mislæg gatnamót. Á leiðinni frá Rauðavatni og austur á Selfoss eru ekki mörg, held ég, ætli þau séu nokkur, kannski ein mislæg gatnamót. Það eru ein. Já, ég held það. Hins vegar er fullt af hringtorgum. Þetta veldur umferðarteppu.
Frú forseti. Ég ætla að klára þetta í næstu ræðu. (Forseti hringir.) Ég sé að tími minn er búinn að þessu sinni.