157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[22:29]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Í síðustu tveimur ræðum mínum er ég búin að vera að fara svolítið yfir ferjumálin, sérstaklega með tilliti til ástandsins núna í ferjumálum við Breiðafjörðinn þar sem Baldur er að fara í þjónustu annað. Þetta hefur í för með sér erfiðleika fyrir bæði atvinnulíf og ferðaþjónustu og bara íbúa á þessu svæði frá Stykkishólmi og vestur, á Vestfirði. Í ræðu minni nr. 2 var ég byrjuð á því að fara yfir Norðvesturkjördæmi. Það skiptist í Vesturland, Vestfirði og Norðvesturland. Ég var byrjuð að fara sérstaklega yfir Vesturland og í fyrstu ræðunni þá fór ég svona almennt yfir samgönguáætlunina en er nú að brjóta þetta meira niður. Í þessari ræðu langar mig að ræða svolítið um Hvalfjarðargöngin út frá sjónarhóli Vestlendinga. Vestlendingar eru með það alveg á tæru, eins og margir aðrir, að samhliða öðrum framkvæmdum við Vesturlandsveg þurfi náttúrlega að huga nú þegar að tvöföldun Hvalfjarðarganga. Það er nefnilega stutt í að hámarki umferðar um göngin samkvæmt reglugerð verði náð. Þess vegna þarf að hefja nauðsynlegan undirbúning að framkvæmd þessa verkefnis. Það verður ekkert flúið að tvöfalda Hvalfjarðargöngin og ég held að það séu flestir sammála um að þess þurfi. Þessu tengt, aftur frá sjónarhóli Vestlendinga, þá hafa náttúrlega íbúar á Vesturlandi mikla reynslu af því að taka þátt í fjármögnun samgöngubóta með veggjöldum. Gerð Hvalfjarðarganga var verkefni sem gekk afskaplega vel og þegar göngin voru uppgreidd árið 2018 voru þau afhent ríkinu, eins og þekkt er. Reynslan af þessum göngum, Hvalfjarðargöngum, hefur leitt til þess að í sérstakri samgönguáætlun Vesturlands, sem öll sveitarfélög hafa staðið að, er farið yfir afstöðu þeirra til veggjalda. Mig langar að vitna beint til þess sem þar er sagt. Ég held að það sé mikilvægt innlegg inn í umræðuna vegna þess að þó svo að það sé búið að greiða Hvalfjarðargöngin upp eru einhverjir þeirrar skoðunar að aftur eigi að byrja að rukka fyrir að fara í gegnum göngin til að fjármagna aðrar framkvæmdir.

En ég ætla að fá að vitna til þessarar samgönguáætlunar Vesturlands, með leyfi forseta, varðandi veggjöldin: „Veggjöld geta í heild eða að hluta staðið straum af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri, þróun og eðlilegum afrakstri af fjárfestingu mannvirkis.“ „Álagning veggjalds er hins vegar ekki óumdeild, ekki síst þegar aðrar mikilvægar framkvæmdir í öðrum landshlutum eru án veggjalds […]. Það er skoðun starfshópsins um stefnumótun í samgöngumálum á Vesturlandi að álagning veggjalds komi aðeins til greina í verkefnum sem eru ekki á langtímaáætlun ríkissjóðs, enda sé það verulegur hagur íbúanna að framkvæmdum verði flýtt. Forsenda þeirrar aðferðafræði er hins vegar að gjaldtöku sé stillt í hóf gagnvart þeim sem eru reglulega í förum þar sem veggjald er lagt á og komið til móts við þá sem sækja atvinnu eða nám og þurfa að nýta viðkomandi mannvirki. Þá er mikilvægt að fyrir liggi almenn stefnumótun ríkisins um í hvaða tilvikum beita skuli veggjöldum til þess að flýta framkvæmdum eða koma nauðsynlegum öryggisúrbótum í verk.“ (Forseti hringir.)

Mikilvægur punktur. Vestlendingar leggjast flestir gegn því hvað varðar hugmyndir að þessu nýja innviðafélagi, að það muni fjármagna framkvæmdir sínar með því að leggja vörugjöld á mannvirki eins og Hvalfjarðargöng (Forseti hringir.) sem er búið að greiða upp. — Ég komst ekki lengra, frú forseti. Ég óska eftir því að fara aftur á mælendaskrá.