157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

þingfundur um sjómannadagshelgi.

[10:32]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Flf):

Hæstv. forseti. Ég vil nú byrja á því að óska sjómönnum landsins til hamingju með þessa helgi og þennan dag sem er á morgun, sjómannasunnudaginn, og sérstaklega kannski fjölskyldum sjómanna og konum sjómanna. Þær eiga ekki síður skilið að fá hamingjuóskir og óskir um góða hluti í framtíðinni af því að á þeirra herðum hvílir oft mikið. En ég er að tala við forseta. Ég fagna því sem Jón Gunnarsson sagði hér rétt áðan en það ætti kannski að tala um kjör sjómanna og annað. Það hefur alltaf verið gert á sjómannasunnudegi og verð á fiski upp úr sjó og annað þess háttar má alveg vera líka í umræðunni.