þingfundur um sjómannadagshelgi.
Frú forseti. Ég ætla nú að byrja á því, eins og hv. þm. Grétar Mar Jónsson, að óska sjómönnum til hamingju með daginn á morgun og óska þeim velfarnaðar í sinni baráttu. En ég tel enga ástæðu til þess að fresta fundum þingsins því að ég er viss um að sjómannaballið og hátíðahöld, t.d. í Fjallabyggð, ganga sinn vanagang þrátt fyrir að við hv. þm. Jón Gunnarsson getum ekki sótt þau hátíðahöld. Ég held að sjómenn vilji einmitt að það séu rædd mál sem hv. þm. Grétar Mar Jónsson kom inn á. Það eru verðlagsmálin og fleiri mál sem snúa að kjörum þeirra, skrýtið verðlag á loðnu, eitthvað sem Sjálfstæðisflokkurinn vill, því miður, ekki ræða eða gerir lítið úr. Hér eru mál á dagskrá þingsins sem er mikilvægt að ræða fyrir hag þjóðarinnar, þ.e. innviðafélagið, og ég vona svo sannarlega að hv. þingmenn sammælist um það að ganga til dagskrár og ræða þau mál sem hér eru undir.