þingfundur um sjómannadagshelgi.
Virðulegur forseti. Ég kem hér upp í fundarstjórn forseta af þessu tilefni og vil byrja á því að óska sjómönnum til hamingju með morgundaginn. Það er alltaf gleðilegt að fagna sjómannadeginum. Ég vil líka benda þingmönnum á að auðvitað eru þingstörfin hér samvinnuverkefni og það hefur legið fyrir í þessari viku frá því á mánudaginn hvaða verkefni biðu þingsins í þessari viku og hvaða framgangur þyrfti að eiga sér stað í þessari viku. Það er samgönguáætlun og innviðafélag. Það er enn þá á dagskrá og sjálfsagt að við ræðum það hér á laugardegi. Mér finnst þeir þingmenn sem voru hér á undan að ræða um kjör sjómanna og mikilvægi þess að við ræddum þau mál — það er gott og vel en ég tel ekki síður mikilvægt að við notum þennan dag til að klára hér samgönguáætlun og innviðafélagið því að þar erum við einmitt að leggja til miklar úrbætur á vegum landsins, höfnum landsins, á þessum grunninnviðum, sem skipta einmitt sjómenn landsins svo miklu máli svo þeir geti sinnt sínum störfum í öryggi, og tryggt þessa verðmætasköpun fyrir landið allt. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)