157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

þingfundur um sjómannadagshelgi.

[10:35]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með sjómannadaginn á morgun og þessa helgi. Ég get að nokkru leyti tekið undir orð hv. þm. Jóns Gunnarssonar, að það hefur verið hefð hér lengi að funda ekki á Alþingi þessa helgi. Ég þekki það vel, ég er búin að vera á þingi mjög lengi. Þetta er í fyrsta skipti sem ég hef ekki getað verið í mínum heimabæ, þorpinu Suðureyri, á sjómannadagshelginni, verið þar og tekið þátt í hátíðahöldunum, verið formaður sjómannadagsráðs þar oftar en ekki og tekið þátt í þessum hátíðahöldum. Við verðum hér á Alþingi að sýna þessari helgi þá virðingu sem hún á skilið. En ég vil að þingmenn líti í eigin barm: Hver er það, hvaða flokkur er það og hvaða þingmenn eru það sem hafa með störfum sínum hér orðið til þess að það hefur þurft að hafa þinghald þennan dag? Ég held að menn ættu að líta í eigin barm með það og sýna þá virðingu að sníða störf sín eftir þannig að við getum átt frí þessa helgi hér á þingi — frí eða ekki frí, að við séum ekki að störfum þessa helgi. Og líti nú hver í eigin barm.