þingfundur um sjómannadagshelgi.
Forseti. Ég vil, eins og kollegar mínir, byrja á því að óska sjómönnum og björgunarsveitunum til hamingju með daginn og þessa helgi. Það þarf að grafa djúpt í þingsöguna til að finna að það sé almennur þingdagur á sjómannadagshelgi. Sjálfur lenti ég í óyndisleik ekki fyrir alls löngu og var í ákveðinni lífshættu. Þar var mér bjargað af björgunarsveitarmönnum og ég ætlaði að vera með þeim og fagna með þeim í dag en ég mun einhvern veginn þurfa að forgangsraða því þannig að ef mig vantar í þingið þá er það út af því. En það er bagalegt að maður þurfi að gera það, geti þá ekki fylgst með allri umræðunni beint hér í þingsal og þurfi að forgangsraða svona á þessari helgi.