157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

þingfundur um sjómannadagshelgi.

[10:38]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Deilum um þinglok, eins og þau eru nú bara í mjög hefðbundnum farvegi núna miðað við mörg undanfarin ár þar sem menn eru að reyna að ná samstöðu milli meiri hluta og minni hluta um það hvaða mál verða afgreidd, á ekki að blanda saman við sjómannadagshelgina, hefur aldrei verið gert. Árið 2012 stóð þetta til en því var mótmælt harðlega og fundi var slitið klukkan eitt aðfaranótt laugardags og ekki boðað til fundar á sjómannadag. Árið 2015 var haldinn neyðarfundur, kallaður, að kvöldi sjómannadags, t.d. að setja neyðarlög vegna afnáms gjaldeyrishafta sem þurfti að vera lokið áður en markaðir og Seðlabanki opnuðu á mánudagsmorgni. Þetta eru þau tvö skipti að gefnu tilefni, eina skiptið sem hefur verið fundað og í hitt skiptið sem ágreiningur var um þetta og hann var leystur þannig að það var ekki fundað. Mínar ræður hér í dag um þetta innviðamál munu fjalla um sjómenn, sjómannadaginn (Forseti hringir.) og tengingu þeirra við þennan málaflokk. Ég ætla að sýna þeim þá virðingu og ég vona að það geri það fleiri.