157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[11:03]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er lítill bragur að því að við séum að ræða þetta þessa helgi en ég ætla ekki að fara í það nákvæmlega núna. Við höfum ekki rætt þetta af neinu viti í nefndinni. Þess vegna verðum við að fá einhverjar upplýsingar af því að við fáum mjög misvísandi upplýsingar í meirihlutaáliti nefndarinnar.

Ég vil spyrja hv. þingmann, svo að ég vitni beint í meirihlutaálitið, með leyfi forseta:

„Meiri hlutinn leggur áherslu á gagnsæi í reikningshaldi félagsins þannig að samband veggjalda og tiltekinnar samgönguframkvæmdar sé ljóst. […] Slíkt fyrirkomulag ætti líka að tryggja að veggjald flokkist ekki sem skattur heldur sem þjónustugjald. Kostnaðartengslin ættu að tryggja að efnisleg tenging verði á milli gjaldskyldunnar og þeirrar þjónustu sem notandinn fær.“

Ef þetta er rétt þá er ekki hægt að byggja upp eigið fé í félaginu og þetta er ekki í samræmi við þær upplýsingar sem við fengum á göngum þingsins frá sérfræðingi sem fór með þetta. (Forseti hringir.) Ég ætla að spyrja um þetta. Sömuleiðis ef hugmyndin er að fara með Kjalarnesveg inn í þetta innviðafélag, (Forseti hringir.) hvar er hjáleiðin fyrir þá sem þar fara um?